Lög BVFÍ

Lög BVFÍ

1. gr.

Félagið heitir Byggingarverkfræðideild VFÍ og skammstafast BVFÍ. Félagið er deild í Verkfræðingafélagi Íslands.Um málefni félagsins fjalla stjórn þess og félagsfundir.

2. gr.
Markmið félagsins er:
- að efla kynni og samstarf byggingarverkfræðinga innanlands og utan;
- að stuðla að aukinni þekkingu félagsmanna í byggingartækni og öðrum skyldum greinum;
- að stuðla að þróun byggingartækni í landinu.

3. gr.
Félagið vinnur að markmiði sínu með því að halda fræðslu-, umræðu- og skemmtifundi, svo og á hvern annan hátt, sem heppilegur þykir á hverjum tíma.

4. gr.
Félagar geta orðið allir byggingarverkfræðingar og mælingaverkfræðingar innan VFÍ og auk þess aðrir félagar í VFÍ sem stjórnin samþykkir.

5. gr.
Úrsögn úr félaginu skal tilkynnt stjórn félagsins skriflega og miðast við áramót.

6. gr.
Öðrum félögum í VFÍ skal heimill aðgangur að fundum BVFÍ. Þó skal í hvert sinn koma til samþykki formanns. Þeir hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum en ekki atkvæðisrétt.

7. gr.
Halda skal fundi þegar tilefni er til og að jafnaði einn skemmti- og gleðskaparfund árlega, sem félögum er heimilt að bjóða gestum á. Ritari heldur gerðabók um það sem fram fer á fundum félagsins. Án samþykkis fyrirlesara og fundarmanna má engar skýrslur birta um það sem fram hefur farið á fundi.

8. gr.
Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins.Aðalfundur skal haldinn á tímabilinu janúar til maí ár hvert og boðaður bréflega með sjö daga fyrirvara.
Dagskrá fundarins skal birt í fundarboðinu svo og allar tillögur sem þurfa samþykki aðalfundar samkvæmt félagslögum.
Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.

9. gr.
Aukaaðalfund skal halda þegar stjórninni þykir ástæða til eða 25 félagar óska þess skriflega.Slíka aðalfundi má ekki halda nema á tímabilinu 15. sept. til 15. maí.

10. gr.
Stjórn félagsins er skipuð fjórum mönnum kosnum á aðalfundi.formannsefni skal kosið árlega til tveggja ára, fyrra árið gegnir formannsefnið störfum varaformanns, en hið síðara störfum formanns.Árlega skal kjósa einn meðstjórnanda til tveggja ára.
Stjórnin kýs sér ritara og gjaldkera.
Formaður boðar til stjórnarfunda.

11. gr.
Árstillag skal ákveðið af aðalfundi og er gjalddagi þess 1. janúar ár hvert.

12. gr.
Breytingar á lögum þessum má eingöngu gera á aðalfundi.Til lagabreytinga þarf 2/3 greiddra atkvæða. Lög félagsins og breytingar á þeim öðlast ekki gildi fyrr en þau hafa verið samþykkt á aðalfundi VFÍ.


Ofangreind lög eru gildandi lög BVFÍ eftir breytingar sem gerðar voru á 8. gr. og 11. gr. á aðalfundi BVFÍ fimmtudaginn 11. maí 1995 og samþykktar á aðalfundi VFÍ þann 14. mars 1996.



Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica