Kvennanefnd VFÍ
Stjórn KVFÍ 2010 - 2011
| Sveinbjörg Sveinsdóttir | 514 5051 | 698 6181 | |
| Kolbrún Reinholdsdóttir | 580 7700 | kolbrun.reinholdsdottir@efla.is | |
| Guðrún Hallgrímsdóttir | 899 7783 | gudrun.ha@internet.is | |
| Svanhvít Júlíusdóttir | svj12@hi.is | ||
| Margrét Edda Ragnarsdóttir | margret.edda.ragnarsdottir@or.is |
Þann 17. febrúar árið 2000 var stofnuð Kvennanefnd innan Verkfræðingafélags Íslands. Sambærilegar nefndir höfðu þá starfað um árabil innan verkfræðingafélaganna á hinum Norðurlöndunum og framtakssamar konur í hópi verkfræðinga töldu rétt að stofna slíka nefnd hér á landi. Við undirbúning að stofnun nefndarninnar var sérstaklega litið til kvennanefndar IDA, danska verkfræðinga- og tæknifræðingafélagsins, sem þá hafi starfað í fimmtán ár með góðum árangri.
Á stofnfund kvennanefndarinnar mættu 20 konur og þar voru markmið nefndarinnar kynnt en þau eru meðal annars:
- Að kvenverkfræðingar hafi jafnmikil áhrif og taki jafnan þátt í tækniþróun og karlverkfræðingar.
- Að auka ásókn kvenna í verkfræði- og tæknigreinar með því að gera kvenverkfræðinga sýnilegri svo til staðar sé fagleg fyrirmynd fyrir stúlkur.
- Að kynnast innbyrðis og styrkja stöðu kvenna innan stéttarinnar.
Brautryðjendurnir
Eftirtaldar konur voru fyrstar íslenskra kvenna til að ljúka verkfræðiprófi.
1945: Kristín Kristjánsdóttir, efnaverkfræðingur
1966: Sigrún Helgadóttir, byggingarverkfræðingur
1968: Sigríður Ásgrímsdóttir, rafmagnsverkfræðingur
1968: Guðrún Hallgrímsdóttir, matvælaverkfræðingur
1979: Sigrún Pálsdóttir, vélaverkfræðingur
Fyrir 1980 höfðu samtals 14 konur lokið prófi í verkfræði. Í Verkfræðingatali sem gefið var út 1996 eru 100 konur sem lokið hafa verkfræðiprófi.
