Rafmagnsverkfræðingadeild VFÍ
RVFÍ er deild rafmagnsverkfræðinga innan Verkfræðingafélags Íslands. Deildin var stofnuð 7. febrúar 1941. Stofnendur voru 13 og var Jakob Gíslason fyrsti formaður deildarinnar. Nú eru um 240 félagsmenn í deildinni.
Stjórn
| Eyrún Linnet, formaður | eyrunl@landsnet.is | ||
| Pétur Örn Magnússon, stallari | petur@vji.is | ||
| Margrét Edda Ragnarsdóttir, gjaldkeri | margret.edda.ragnarsdottir@or.is | ||
| Garðar Hauksson, ritari | gardarh@gmail.com |
Hlutverk deildarinnar
Hlutverk deildarinnar er skv. lögum hennar að efla kynningu og samstarf meðal rafmagnsverkfræðinga innanlands og utan, að auka þekkingu félagsmanna í rafmagnsverkfræði og öðrum skyldum fræðigreinum, og að stuðla að viðgangi rafmagnstækni í landinu.
Þessu hlutverki sinnir deildin m.a. með fræðslu- og kynningarfundum í Verkfræðingahúsi og með heimsóknum og kynnisferðum í fyrirtæki og stofnanir.
Fjármál deildarinnar
Fjárhag deildarinnar er þannig háttað að af félagsgjaldi hvers rafmagnsverkfræðings í VFÍ renna 500 krónur til deildarinnar. Að auki nýtur deildin styrkja frá VFÍ til rútuferða ef farið er í heimsóknir út fyrir Reykjavíkursvæðið. Einnig eru jafnan seldar veitingar á fundum í Verkfræðingahúsi.
Orðanefnd RVFÍ
Á vegum RVFÍ starfar Orðanefnd RVFÍ, sem er elsta orðanefnd landsins, jafngömul deildinni. Orðanefndin hefur gefið út 16 orðabækur.
