LÖG Rafmagnsverkfræðingadeildar VFÍ
1. gr.
Félagið er deild í Verkfræðingafélagi Íslands (VFÍ).
Heiti þess er Rafmagnsverkfræðingadeild VFÍ, og skammstafast nafnið RVFÍ.
2. gr.
Markmið félagsins er:
- að efla kynningu og samstarf meðal rafmagnsverkfræðinga innanlands og utan.
- að auka þekkingu félagsmanna í rafmagnsverkfræði og öðrum skyldum fræðigreinum.
- að stuðla að viðgangi rafmagnstækni í landinu.
3. gr.
Félagið vinnur að markmiði sínu með því að halda fræðslu-, umræðu- og skemmtifundi svo og á hvern annan hátt, sem heppilegur þykir á hverjum tíma.
4. gr.
Félagar í RVFÍ geta orðið allir rafmagnsverkfræðingar, sem eru félagar í VFÍ, svo og eðlisfræðingar í VFÍ, sem RVFÍ mælir með.
5. gr.
Úrsögn úr félaginu skal bundin við áramót, og skal hún tilkynnt formanni skriflega. Þeir félagar, sem af einhverjum ástæðum fara úr VFÍ, glata samtímis réttindum sem félagar í RVFÍ.
6. gr.
Hvorki félagið í heild né einstakir félagar mega koma fram opinberlega í nafni RVFÍ nema að fengnu samþykki stjórnar VFÍ.
RVFÍ getur ekki skuldbundið VFÍ fjárhagslega.
7. gr.
Öðrum félögum í VFÍ skal heimill aðgangur að fundum RVFÍ. Þó skal í hvert sinn til koma samþykki formanns.
Þeir hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum, en ekki atkvæðisrétt.
Stjórn félagsins getur á sama hátt heimilað gestum aðgang að fundum, ef ástæða þykir til.
8. gr.
Halda skal fundi, þega tilefni er til, og að jafnaði einn skemmti- og gleðskaparfund árlega, sem félögum er heimilt að bjóða gestum á.
Tilkynna skal fundi skriflega með að minnsta kosti 3 daga fyrirvara. Ritari heldur gerðabók um það, sem fram fer á fundum félagsins.
Án samþykkis fyrirlesara og fundarmanna má engar skýrslur birta um það, sem fram hefur farið á fundi.
9. gr.
Stjórn félagsins er skipuð 4 mönnum, formanni, ritara, gjaldkera og stallara og skal kosin á aðalfundi með leynilegum kosningum til eins árs í senn. Stallara til aðstoðar skal vera skutulsveinn, og skal hann að jafnaði vera sá fundarmanna, er síðast gekk í félagið.
10. gr.
Aðalfund skal að jafnaði halda í janúarmánuði ár hvert, þó eigi síðar en viku fyrir aðalfund VFÍ.
Skal hann boðaður með að minnsta kosti viku fyrirvara. Aðalfundur er löglegur, sé löglega til hans boðað.
Dagskrá aðalfundar skal auglýst í fundarboði.
11. gr.
Ársiðgjald ákveðist af aðalfundi RVFÍ og innheimtist af gjaldkera í byrjun hvers almanaksárs.
12. gr.
Breytingar á lögum þessum má eingöngu gera á aðalfundi, enda hafi breytingartillögur verið tilkynntar í fundarboði.
Til lagabreytinga þarf 2/3 greiddra atkvæða.
Lögin og breytingar á þeim öðlast ekki gildi fyrr en þau hafa verið samþykkt á aðalfundi VFÍ.
