Til verkfræðinga utan félags
Margir spyrja hvaða ávinningur sé af því að vera í Verkfræðingafélaginu. Því miður svara margir þessari spurningu þannig:
"Ég borga mörg þúsund í félagsgjöld á ári og þessir peningar skila sér aldrei..."
Hins vegar er nauðsynlegt að skoða dæmið frá breiðara sjónarhorni. Sá félagsmaður sem velur að standa utan félagsins sparar vissulega félagsgjöldin en nýtur eftir sem áður tilvistar félagsins og þeirra verka sem félagið annast fyrir stéttina í heild. Samanburðurinn er því aðeins sanngjarn að menn beri saman félagsaðild annars vegar og félagið sé ekki til hins vegar.
Lítum á hvað félagið gerir:
- Stendur vörð um menntun íslenskra verkfræðinga.
- Stendur að símenntun og fræðslu.
- Gengst fyrir ráðstefnum, fundum og fyrirlestrum.
- Gætir hagsmuna og réttinda félagsmanna og stuðlar að gæðum í kjörum og starfsumhverfi.
- Stendur vörð um starfsheiti verkfræðinga.
- Er samstarfsvettvangur verkfræðinga í kjaramálum og mótandi afl í sókn að bættum kjörum.
- Er málsvari verkfræðinga í atvinnumálum og upplýsingaveita.
- Er lögformlegur samningsaðili um kaup og kjör félagsmanna.
- Stuðlar að jákvæðri ímynd verkfræðinga.
- Eykur gagnkvæm kynni félagsmanna.
- Gengst fyrir skoðunarferðum og vettvangskönnunum.
- Gefur út fagrit og rit sem fjalla um málefni stéttarinnar.
- Annast erlend samskipti varðandi starfsréttindi.
- Stendur að gerðardómi VFÍ.
- Veitir aðild að systurfélögum erlendis.
Þetta allt kemur beint eða óbeint öllum verkfræðingum til góða. Leggðu því hönd á plóginn og vertu með!
Inntökubeiðni | Leiðbeiningar MVFÍ | Inntökureglur