Félagsmenn VFÍ sem eru án atvinnu halda fullum réttindum í eitt ár og greiða lágmarks félagsgjald sem er 500 krónur á mánuði. Félagsmenn verða sjálfir að tilkynna Vinnumálastofnun að skila eigi félagsgjaldi til viðkomandi stéttarfélags.
Á vormánuðum 2009 var samþykkt að full réttindi í sjúkra- og styrktarsjóðum haldast í eitt ár eftir að iðgjald vinnuveitanda í sjóðina hættir að berast. Ef atvinnuleysi stendur í 24 mánuði eða skemur öðlast sjóðfélagi full réttindi eftir greiðslu fyrsta iðgjalds frá vinnuveitanda.
Hvað varðar réttindi í Orlofssjóði VFÍ þá haldast réttindi í tvö ár ef greitt var samfellt í sjóðinn í tvö ár áður en atvinnuleysi hófst. Réttindin minnka samkvæmt úthlutunarreglum sjóðsins. Sjóðfélagi getur ekki gert kröfu til sjóðsins við úrsögn. Þannig er hægt að nýta áunna S-punkta til úthlutunar þar til þeir eru á þrotum.