Fyrsta kjarakönnunin meðal verkfræðinga var gerð árið 1988. Hefur slík könnun verið gerð árlega síðan, hin síðustu ár tvisvar á ári. Markmiðið frá upphafi hefur verið að afla sem gleggstra upplýsinga um kaup og kjör verkfræðinga í hinum ýmsu starfsgreinum.
Könnunin og úrvinnsla hennar er unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Með því er þátttakendum í tryggð nafnleynd og hlutleysi í úrvinnslu, auk þess sem stofnunin aflar tiltekinna leyra til gagnaskráningar.
VFÍ leggur áherslu á að konum og körlum sé gert jafn hátt undir höfði á vinnumarkaði. Jafn réttur og jöfn tækifæri kvenna og karla til launa og starfa eru grundvallar mannréttindi.
Það er skoðun VFÍ að upplýsingar um laun og önnur starfskjör verkfræðinga séu nauðsynlegar til að unnt sé að gera raunhæfa samninga um kaup og kjör. Kjarakönnun er leið til að afla slíkra upplýsinga.