Kjarasamningur við Samninganefnd sveitarfélaga var undirritaður í júní 2011 og er gildistími hans frá 1. maí 2011 til 31. mars 2014. Hér er um heildarsamning að ræða auk sex bókana.
Samningurinn gildir fyrir verkfræðinga, tæknifræðinga og byggingarfræðinga sem starfa hjá þeim sveitarfélögum sem falið hafa Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga samningsumboð sitt.
Launahækkanir samningsins eru:
Orlofsuppbót greidd 1. maí 2013 er 38.000,- kr.
Desemberuppbót greidd 1. desember 2013 er 80.700 kr.
Samkvæmt kjarasamningnum greiða sveitafélögin í eftirtalda sjóði viðkomandi kjarafélags.
Þá var sú breyting gerð á samningnum frá fyrri samningi að svokallaðar TV einingar voru felldar út úr samningnum. Verði starfsmenn fyrir miklu áreiti eða mikilli vinnu er gert ráð fyrir að fyrir þá vinnu eða álag verði greidd yfirvinna.
Skoðið ennfremur starfsmat í sérákvæði I um matið og yfirfarið stigin sem er ráða röðun í launaflokka.
Samningurinn er á stikunni hér til vinstri.