Markmiðið með útgáfu markaðslaunatöflu VFÍ er að upplýsa félagsmenn um þau laun sem verkfræðingum eru almennt greidd. Það er alveg ljóst að víðtæk og góð launakönnun ásamt ítarlegum upplýsingum um hvernig nota má hana í launabaráttu er beitt vopn í höndum launþega og þá sérstaklega þeirra sem semja sjálfir um kaup og kjör á almenna markaðnum.
Markaðslaun teljast allar greiðslur sem verkfræðingurinn fær fyrir þann vinnutíma sem almennt telst vera dagvinnutími á hverjum tíma. Til markaðslauna teljast ekki greiðslur fyrir unna yfirvinnu né heldur hvers konar endurgreiðslur á útlögðum kostnaði.
Það eru eindregin tilmæli að verkfræðingar sættist ekki á laun sem eru undir markaðslaunum. Markaðslaunin eru þau laun sem vel flestum verkfræðingum hefur tekist að semja um við vinnuveitendur.