Kaup og kjör

Kaup og kjör

Kjarakannanir - markaðslaunatafla  - lögfræðiaðstoð

VFÍ er lögformlegur samningsaðili um kaup og kjör félagsmanna. Félagið gerir kjarakannanir og gefur út markaðslaunatöflu. Lögfræðiþjónusta er mikilvægur liður í starfsemi félagsins.

Sviðsstjóri kjaramála veitir félagsmönnum ráðgjöf og þjónustu og vinnur að sérverkefnum á vegum félagsins.

Sviðsstjóri kjaramála er Þrúður G. Haraldsdóttir

Ráðningarsamningar
Einn mikilvægasti þáttur í starfsemi VFÍ er að aðstoða félagsmenn að gera ráðningarsamninga. Þegar gerðir eru svokallaðir einstaklingsbundnir ráðningarsamningar, sem þýðir að vinnuveitandi er ekki aðili að kjarasamningi við VFÍ, er mjög mikilvægt að vanda vel gerð ráðningarsamnings.

Lögfræðiaðstoð
Stéttarfélag verkfræðinga býður upp á ókeypis lögfræðiaðstoð vegna kjaramála og ágreiningsmála sem varða kjaralega hagsmuni félagsmanna. Auk þess fá félagsmenn 25% afslátt hjá lögfræðingum SV vegna persónulegra mála.

Lára V. Júlíusdóttir hrl. sinnir lögfræðilegri þjónustu fyrir félagið og í málum er varða rétt félagsmanna. Beiðni um þjónustu hennar þarf að fara í gegnum skrifstofu VFÍ.

Athugið að á stikunni hér til vinstri má nálgast m.a. kjarasamninga, kjarakannanir og markaðslaunatöflu.

Senda efni

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica