Þegar starfsmaður þarf að ferðast í vinnu sinni greiðir vinnuveitandi útlagðan kostnað vegna ferðarinnar. Starfsmaður á að geta fengið fyrirframgreiðslu upp í áætlaðan kostnað. Við uppgjör þarf síðan að leggja fram reikninga í frumriti.
Algengt er hins vegar að greiða "dagpeninga" fyrirfram. Stéttarfélög og ríkið skipa í svokallaða ferðakostnaðarnefnd sem ákveður upphæðir dagpeninga sem og aksturgjald.
Upplýsingar um upphæðir dagpeninga má finna á vef fjármálaráðuneytisins.