Orlofssjóður

Orlofssjóður VFÍ

Orlofssjóður Verkfræðingafélags Íslands (OVFÍ) hefur starfað frá árinu 1997.

Iðgjöld í sjóðinn eru 0,25% af launum og greiðast af vinnuveitanda. Í sjóðinn er nú greitt fyrir verkfræðinga hjá ríki og Reykjavíkurborg auk flestra á almennum markaði að undanskildum verkfræðistofum, en þær skila í undantekningartilvikum greiðslum í sjóðinn. Sjálfstætt starfandi verkfræðingar geta greitt í sjóðinn einnig eru dæmi um að launamenn greiði sjálfir iðgjöld til sjóðsins.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að ungfélagar hafa ekki rétt til að leigja orlofshús OVFÍ nema greitt sé reglulega iðgjald í sjóðinn af vinnuveitanda.

Orlofssjóðurinn hefur vaxið hratt og hafa fjölmargir félagsmenn notið orlofsdvalar fyrir tilstilli sjóðsins. Á sumrin byggist starfsemin að mestu á að endurleigja félagsmönnum sumarbústaði og íbúðir víða um land.

Orlofssjóðurinn á fjögur hús sem eru staðsett í Hraunborgum í Grímsnesi, eitt sumarhús í Húsafelli og eitt í landi Geirlands við Kirkjubæjarklaustur.

Nánari upplýsingar um það sem er í boði á vegum sjóðsins má finna á stikunni hér til vinstri.

Fyrirspurnir.

Reglugerð Orlofssjóðs SV.


 

Senda efni

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica