Vetrarleiga

Vetrarleiga - Fullbókað fram að sumarúthlutun 2012

Athugið að Orlofshúsin eru fullbókuð fram að sumarúthlutun.

Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða á haustin og veturna en áhugasamir eru beðnir að snúa sér beint til skrifstofu með tölvupósti.

Hraunborgir

Orlofssjóður VFÍ á tvo bústaði í Hraunborgum í Grímsnesi. Leiga er kr. 12.000 fyrir vikuna og er félagsmönnum í sjálfsvald sett hvort þeir nýta hana alla. Greiða verður leiguna innan sólarhrings frá bókun. Húsin eru leigð frá morgni fimmtudags til kl. 16 næsta miðvikudag en þá þarf að rýma húsin.

Nánari upplýsingar, m.a. um lausar vikur,  má finna á stikunni hér til vinstri.

Húsafell

Orlofssjóður VFÍ á bústað í Húsafelli og er hann nýuppgerður. Leiga er kr. 12.000 fyrir vikuna og er félagsmönnum í sjálfsvald sett hvort þeir nýta hana alla. Greiða verður leiguna innan sólarhrings frá bókun. Bústaðurinn er leigður frá morgni fimmtudags til kl. 16 næsta miðvikudag.

Nánari upplýsingar, m.a. um lausar vikur, má finna á stikunni hér til vinstri.

Kirkkjubæjarklaustur

Orlofssjóður VFÍ á bústað í landi Geirlands við Kirkjubæjarklaustur. Endurbóta er þörf á bústaðnum og verður hann því ekki leigður út í haust og vetur.

Greiðsluupplýsingar vegna leigu

Vinsamlega greiðið innan sólarhrings frá bókun að öðrum kosti fellur bókun sjálfkrafa niður.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að orlofsleiga er ekki endurgreidd.

Greiða skal inn á bankareikning: 0334-26-050636. Kennitala: 620269-6629

Afrit til staðfestingar greiðslu sendist á netfangið: inga@verktaekni.is. Í Hraunborgum og Húsafelli eru lyklahús við dyr orlofshúsanna og er aðgangskóði sendur leigjanda í tölvupósti þegar gengið hefur verið frá bókun og greiðslustaðfesting móttekin. 

Félagsmenn sem ekki eru í OSV

Þeir félagsmenn Stéttarfélags verkfræðinga sem ekki er greitt fyrir í Orlofssjóð VFÍ geta sótt um bústaðina með viku fyrirvara en greiða þá 50% álag á leigugjaldið. Ef félagsmenn eru í vafa hvort greitt er fyrir þá í Orlofssjóðinn eru þeir beðnir um að hafa samband við skrifstofu VFÍ sem veitir nánari upplýsingar

Senda efni

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica