Hótelmiðar á höfuðborgarhótelin Icelandair Hótel Reykjavík Natura og Icelandair Hótel í Keflavík standa sjóðfélögum í Orlofssjóði VFÍ til boða eins og liðna vetur. Á landsbyggðinni bjóðum við gistingu á: Icelandair Hótel Akureyri, Hótel Hérað, Hótel Klaustur, Hótel Flúðir og Hótel Hamar.
Icelandair Hótel Reykjavík Natura og Icelandair Hótel í Keflavík
Tveggja manna standard herbergi án morgunverðar kr. 6.000.-
Morgunverður er ekki innifalinn - Reykjavík kr. 1.950.- á mann.
Morgunverður er ekki innifalinn - Keflavík kr. 1.600.- á mann.
Icelandair Hótel Akureyri, Hótel Hérað, Hótel Klaustur, Hótel Flúðir og Hótel Hamar Borgarnesi
Tveggja manna standard herbergi án morgunverðar kr. 5.000.-
Morgunverður er ekki innifalinn kr. 1.600.- á mann.
Flugleiðahótelin bjóða einnig öll upp á fjölbreyttar veigingar á glæsilegum veitingastöðum.
Allar frekari upplýsingar veittar í síma 444 4000 og á netfanginu icehotels@icehotels.is
Miðarnir eru pantaðir á netfanginu inga@verktaekni.is og tilbúnir til afgreiðslu í móttöku skrifstofu VFÍ að Engjateigi 9, þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Framvísa verður staðfestingu á greiðslu miðanna við afhendingu.