Húsafell

Orlofshús í Húsafelli

Gagngerar endurbætur voru gerðar á bústaðnum vorið 2011.

Bústaðurinn í Húsafelli er umvafinn gróðri og stendur á frábærum stað skammt frá þjónustumiðstöðinni. Stutt er í sundlaugina, á golfvöllinn og í verslunina. Bústaðurinn er í góðu skjóli frá öðrum bústöðum.

Í eldhúsi er eldavél með bakaraofni og stór ísskápur með frysti. Öll helstu eldhúsáhöld fylgja ásamt örbylgjuof ni. Stofan er rúmgóð með borðkrók, svefnherbergi eru þrjú; hjónaherbergi, eitt herbergi með 120 cm breiðu rúmi og annað með kojum fyrir tvo og ungbarnarúmi. Skápar eru í öllum herbergjum. Baðið er með skáp og sturtu. Í húsinu eru einnig lausar dýnur og rúmar því 5-8 manns.

Í húsinu er sjónvarp, DVD spilari og útvarp með geislaspilara. Umhverfis húsið er góður pallur með heitum potti og gasgrilli.

Frá Húsafelli er stutt að fara í ferðir á Langjökul. Reykholt og Barnafossar eru í næsta nágrenni ásamt Surtshelli. Mikið er um fallegar og skemmtilegar gönguleiðir á svæðinu.

Húsreglur, ráðlegt er að prenta þær út og taka með í bústaðinn.

 

Vika nr.  Dagar   Staða
 4 26. jan. - 1. feb. Bókað 
 5 2. - 8. feb. Bókað 
 6 9. - 15. feb.  Bókað 
 7 16. - 22. feb. Bókað
 8 23. - 29. feb.  Bókað 
 9 1. - 7. mars Bókað 
10  8. - 14. mars Bókað 
11 15. - 21.mars Bókað 
12 22. - 28. mars  Bókað 
13 29. mars - 4. apríl Bókað 
14 5. - 11. apríl Bókað
15  12. - 18. apríl Bókað
16 19. - 25. apríl Bókað
17 26. apríl - 2. maí Bókað
18 3. - 9. maí Bókað 
19 10. - 16. maí Bókað
 20 17. - 23. maí Bókað 
 21  24. - 30. maí Bókað
 22  31. maí - 6. júní Bókað
Senda efni

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica