Sjúkrasjóður

Sjúkrasjóður

Mikilvægur bakhjarl.

Aðild að sjúkrasjóði eiga þeir verkfræðingar á almennum markaði sem greitt er fyrir í sjóðinn. Fram til 1. febrúar 2004 var einungis greitt fyrir verkfræðinga utan kjarasamninga í Sjúkrasjóðinn.

Með kjarasamningi við FRV (Félag ráðgjafarverkfræðinga) það ár var samið um greiðslur í sjóðinn. Það er þó háð því að viðkomandi sé félagi í Verkfræðingafélagi Íslands.

Verkfræðingar sem starfa hjá opinberum aðilum eiga ekki aðild að sjúkrasjóði en greitt er fyrir þá í Styrktarsjóð sem lesa má um á öðrum stað á heimasíðunni.

Tilgangur Sjúkrasjóðsins er að aðstoða sjóðfélaga (sem greitt er fyrir í sjúkrasjóð) ef þeir verða frá vinnu í langan tíma vegna veikinda eða slysa.

Bótaréttur er háður greiðslum í sjóðinn. Einnig er greitt úr sjóðnum viðbótarframlag í fæðingarorlofi og ýmsir styrkir svo sem íþróttastyrkir, gleraugnastyrkir o.s.frv. sjá nánar í reglugerð og starfsreglum, sem hægt er að nálgast hér til vinstri á síðunni. 

Afgreiðsla sjúkrasjóðsins er á skrifstofu VFÍ. Netfang: inga@verktaekni.is

Rafrænt umsóknareyðublað er hér til vinstri á síðunni. Athugið að stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að kalla eftir frumriti af skönnuðum reikningum eða símbréfum. Nánari upplýsingar og fyrirspurnir.


 

Senda efni

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica