Í kjarasamningum VFÍ við Ríki, Reykjavíkurborg og Launanefnd sveitarfélaga er ákvæði um greiðslur í Starfsmenntunarsjóði. Verkfræðingar hjá ríki eiga aðild að Starfsmenntunarsjóði VFÍ - ríki og verkfræðingar hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélögum eiga aðild að öðrum sjóði, Starfsmenntunarsjóði VFÍ - borg.
Ríkissjóður og ofh. og ehf. fyrirtæki sem voru áður ríkisstofnanir greiða mánaðarlega framlag í Starfsmenntunarsjóð VFÍ - ríki.
Umsóknir eru afgreiddar á stjórnarfundum. Upphæð hámarksstyrks er 450.000 kr. Um réttindasöfnun má lesa í starfsreglum sem eru á stikunni hér til vinstri á síðunni. Þar er einnig umsóknareyðublað.
Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, kaupa á bókum tölvum o.s.frv. Upphæð tölvustyrkja er 200 þúsund kr. Fjögur ár þurfa að líða milli tölvustyrkja.
Rafrænt umsóknareyðublað er hér til vinstri á síðunni. Athugið að skila verður frumriti af reikningum.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir.
Reykjavíkurborg greiðir mánaðarlega framlag í sjóðinn, einnig sf. og ehf. fyrirtæki sem áður voru borgarstofnun.
Verkfræðingar, sem starfa hjá öðrum sveitarfélögum geta verið félagar í sjóðnum svo fremi að þeir eigi ekki aðild að öðrum sambærilegum sjóðum.
Umsóknir eru afgreiddar á stjórnarfundum. Upphæð hámarksstyrks er 480.000 kr. sem tók gildi 1. janúar 2008. Um réttindasöfnun má lesa í starfsreglum sem eru á stikunni hér til vinstri á síðunni. Þar er einnig umsóknareyðublað.
Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, kaupa á bókum, tölvum o.s.frv. Upphæð tölvustyrkja er 200.000 kr. Hækkun styrks tók gildi 1. janúar 2010.
Rafrænt umsóknareyðurblað er hér til vinstri á síðunni. Athugið að skila verður frumriti af reikningum.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir.