Í kjarasamningi Stéttarfélags verkfræðinga við ríkið sem undirritaður var 29. maí 2001 er í gr. 14 ákvæði um stofnun svokallaðs Fjölskyldu- og styrktarsjóðs.
Megin tilgangur sjóðsins er að greiða sjúkradagpeninga til sjóðfélaga sem eru í starfi en lenda tímabundið út af launaskrá eða verða fyrir launaskerðingu vegna veikinda eða slysa. Auk þess eru greiddir styrkir vegna útlagðs kostnaðar sjóðfélaga.
Hægt er að fræðast um sjóðinn með því að lesa reglugerð sjóðsins og starfsreglur hér á síðunni.
Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög greiða einnig í þennan sjóð fyrir þá starfsmenn sveitarfélaganna sem eru félagar í VFÍ.
Rafrænt umsóknareyðublað er hér til vinstri á síðunni. Athugið að skila verður frumriti af reikningum. Nánari upplýsingar og fyrirspurnir.
Vegna fæðingarorlofs.
Athugið að með umsókn skal fylgja: Afrit af síðasta launaseðli og fæðingarvottorði barns.