Menntamálanefnd VFÍ veitir umsögn til iðnararráðherra varðandi umsóknir um starfsheitisleyfi verkfræðinga og inngöngu í félagið.
Eitt af megin einkennum nútíma þekkingarþjóðfélags er að menntun er aldrei lokið. Annað einkenni er sívaxandi samkeppni milli mismunandi faghópa um forystu á sviði stjórnunar, athafna og viðskipta. Því er brýnna en nokkru sinni áður að efla samstöðu og þekkingu verkfræðinga og tryggja þannig að stéttin geti mætt nýjum kröfum.
VFÍ leggur sitt að mörkun til að efla endurmenntun og símenntun félagsmanna. Félagið var stofnaðili að Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands sem nú heitir Endurmenntun Háskóla Íslands.
Menntamálanefnd ásamt Endur- og símenntunarnefnd (ENSÍM) eru ráðgefandi aðilar stjórnar varðandi þessi mál. Menntamálanefnd er einnig ráðgefandi umsagnaraðili um rétt manna til að kalla sig verkfræðing og um umsókn að félaginu.
ENSÍM nefndin vinnur markvisst að því að tryggja sem fjölbreyttast og best framboð af námskeiðum fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga.
VFÍ vinnur ennfremur að endur- og símenntunarmálum með: