Menntamálanefnd

Menntamálanefnd

Menntamálanefnd ein fastanefnda VFÍ í 6. og 17. grein félagslaga eru verkefni nefnarinnar skilgreind. Auk þeirrar skilgreiningar veitir Menntamálanefnd VFÍ umsögn til iðnararráðherra varðandi umsóknir um starfsheitisleyfi verkfræðinga.

6. gr. Innganga

Beiðni um inngöngu í félagið skal send stjórn félagsins skriflega.  Menntamálanefnd VFÍ fær til umsagnar allar umsóknir um inngöngu í félagið og metur þær samkvæmt þeim reglum sem stjórnin hefur samþykkt um meðferð umsókna, þar sem m.a. skal kveðið á um lágmarkskröfur sem gera skal til menntunar nýrra félagsmanna.  Ef umsögn menntamálanefndar er jákvæð ber stjórninni að veita umsækjanda aðild að félaginu.  Ef umsögn er neikvæð getur stjórnin ekki veitt viðkomandi aðild að félaginu, nema í undantekningartilvikum, t.d. ef viðkomandi getur ekki aflað tilskilinna gagna vegna styrjalda eða af stjórnmálalegum ástæðum.  Í slíkum tilvikum þarf stjórnin að samþykkja inngöngu samhljóða.

 

17. gr. Menntamálanefnd

Menntamálanefnd skal standa vörð um menntun verkfræðinga og fylgjast með því námi sem í boði er hér á landi á því sviði.  Menntamálanefnd skal vera stjórn félagsins til ráðuneytis um menntamál.  Hún skal hafa frumkvæði að því hvernig félagið getur beitt áhrifum sínum gagnvart yfirvöldum menntamála í því skyni að ná markmiðum félagsins.  Menntamálanefnd skal semja reglur um þær menntunarkröfur sem krafist er til inngöngu í félagið.  Þessar reglur skulu hljóta staðfestingu stjórnar og skulu síðan gefnar út.

Menntamálanefnd metur allar umsóknir um inngöngu í félagið sbr. 6. gr.

Aðeins þeir sem hafa leyfi ráðherra til þess kalla sig verkfræðing eru gjaldgengir til setu í Menntamálanefnd.

 

Fundir Menntamálanefndar eru haldnir að jafnaði haldnir annan fimmtudag í mánuði.

Steindór Guðmundsson, formaður 422 8490 864 5018 stgu@verkis.is
Þórður Helgason 543 5737 thordurh@ru.is
Ingunn Sæmundsdóttir 861 1701 599 6440 ingunn@ru.is
Sigurður M. Garðarsson 525 4659 864 5082 sigmg@hi.is
Jenny Rut Hrafnsdóttir 587 8700 861 9180 jenny@krumma.is
Einar Matthíasson 460 5570 894 2741 einarmatt@simnet.is 
Björn Karlsson 591 6000 824 5165 bjorn@mvs.is


Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica