Menntastefna
Stefna VFÍ og TFÍ í endurmenntunarmálum verkfræðinga og tæknifræðinga.
1. Félögin telja, að ekki nægi að byggja starfsferil tæknimanna (tæknifræðinga og verkfræðinga) eingöngu á formlegu tæknifræði- eða verkfræðiprófi, sem lokið er við upphaf starfsferils. Því verði stefnt að því að tryggja, að tæknimenn eigi völ á endurmenntun og að þeir geti stundað reglulega og vel skipulagða símenntun, samhliða starfsferli sínum og svo lengi sem þeir kjósa til að viðhalda faglegri endurnýjun.
2. Félögin geri endurmenntunar- og símenntunarmál félagsmanna sinna að sérstöku forgangsverkefni. Stefnt verði að því að verja til þessa málaflokks umtalsverðri upphæð árlega næstu fimm árin til að greiða fyrir skjótri uppbyggingu á skilvirku símenntunarkerfi fyrir tæknimenn.
3. Félögin stofni og reki sameiginlegan endurmenntunarsjóð tæknimanna. Sjóðurinn verði að hluta fjármagnaður af vinnuveitendum tæknimanna og að hluta af félögunum sjálfum.
4. Félögin hafi sjálf með höndum umgjörð og viðskiptahluta endurmenntunarstarfsins og leiti jafnan hagkvæmustu leiða við útfærslu á fræðslustarfinu.
5. Félögin verði í forsvari fyrir skipulagningu símenntunarnáms tæknimanna og beiti sér fyrir því, að endurmenntunar- og símenntunarnámsskeið verði skipulögð í samvinnu við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og þær menntastofnanir, sem veita prófgráður í tæknifræði og verkfræði hér á landi og erlendis. Auk þess standi félögin sjálf að námskeiðum ein sér eða í samvinnu við fyrrtalda aðila eins og hagkvæmt þykir hverju sinni.
6. Félögin beiti sér fyrir því að í boði verði endurmenntunar- og símenntunarnámskeið fyrir tæknimenn, sem verði skipulögð á þann hátt, að tæknimenn geti lagt stund á heildstæða og samfellda símenntun, sem tryggir þeim stöðuga faglega þróun og endurnýjun. Lögð verði sérstök áhersla á uppbyggingu og þróun fjarnáms og að tryggja hagsmuni tæknimanna utan höfuðborgarsvæðisins í þessu efni.
7. Félögin beiti sér fyrir almennri viðurkenningu í þjóðfélaginu á því, að þeir tæknimenn, sem stunda reglulega símenntun, hljóti réttláta umbun og að jafnaði örari launahækkanir og framgang í starfi en aðrir. Félögin leiti eftir breiðri samvinnu við viðkomandi stéttarfélög tæknimanna og vinnuveitendur um að koma þessu til leiðar.
8. Félögin kanni hvort fýsilegt sé að koma á hér á landi kerfi atvinnutrygginga í stað atvinnuleysistrygginga, sem miði að því að auðvelda tæknimönnum að tryggja sig gegn hugsanlegu atvinnuleysi með stöðugri símenntun og faglegri endurnýjun.
9. Félögin komi á fót sameiginlegri fastanefnd, Endurmenntunar- og símenntunarnefnd tæknifræðinga og verkfræðinga, með fullu umboði til að fara með endurmenntunar- og símenntunarmál tæknimanna, jafnt inn á við sem út á við, fyrir þeirra hönd.
10. Félögin gangist fyrir árlegu hófi þar sem tæknimönnum, sem stundað hafa skilvirka símenntun með tilskildum árangri, verði veitt formleg viðurkenning.
