Félagslög VFÍ

Félagslög VFÍ

Samþykkt á stofnfundi sameinaðs félags Verkfræðingafélags Íslands og Stéttarfélags verkfræðinga 31. maí 2011.

 

1. gr. Nafn félagsins
Félagið heitir Verkfræðingafélag Íslands,  skammstafað VFÍ.  Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr. Markmið félagsins
Markmið félagsins er að:
- Vera öflugur málsvari verkfræðinga, fylgjast með og taka þátt í umræðu um verkfræðileg málefni.
- Gæta hagsmuna og réttinda félagsmanna og stuðla að gæðum í kjörum og starfsumhverfi.
- Standa vörð um starfsheitið og gæði verkfræðimenntunar.
- Stuðla að tækniþróun með samfélagslega ábyrgð, hagsmuni almennings og umhverfis að leiðarljósi.
- Vera vettvangur samskipta félagsmanna inn á við og talsmaður þeirra út á við.


3. gr. Leiðir að markmiðum
Félagið vinnur að markmiðum sínum með því að:
- Efla ímynd félags og stéttar í samfélaginu meðal annars með virkri þátttöku í þjóðfélagsumræðu.
- Vera lögformlegur samningsaðili um kaup og kjör félagsmanna sbr. 12.grein.
- Halda góðum tengslum við menntastofnanir og stuðla að endur- og símenntun félagsmanna.
- Veita einstaklingsbundna þjónustu og starfrækja upplýsingaveitu um kjaramál í víðum skilningi.
- Halda uppi öflugu félagsstarfi og eiga gott samstarf  við opinbera aðila og önnur hagsmuna- og fagfélög.
- Vera bakhjarl félagsmanna sem mótandi afls í þróun samfélagsins á sviði tækni, vísinda og atvinnuuppbyggingar.
- Hafa jafnrétti að leiðarljósi í starfi sínu.

4. gr. Skilyrði um félagsaðild
Almennir félagar geta orðið:
1. Þeir sem lokið hafa viðurkenndri prófgráðu í verkfræði,    svo og þeir sem lokið hafa viðurkenndri prófgráðu í þeim vísindagreinum sem verkfræðin byggist á, s.s. eðlisfræði, efnafræði og stærðfræði.
2. Stjórn félagsins getur boðið fræðimönnum í raunvísindum og framkvæmdamönnum að gerast almennir félagar, enda mæli sérstakar ástæður með því.  Stjórnin tekur endanlega afstöðu til slíkra umsókna.
Verkfræðinemar og nemar í vísindagrein sem verkfræðin byggist á,  sem lokið hafa einu námsári  af háskólanámi geta orðið ungfélagar.  Ungfélagar hafa takmörkuð réttindi og skyldur meðan þeir stunda námið.


5. gr. Heiðursfélagar
Stjórn félagsins getur kosið sem heiðursfélaga sérhvern þann einstakling sem leyst hefur af hendi mikilsverð störf á sviði verkfræði eða vísinda.  Til kjörs heiðursfélaga þarf samhljóða atkvæði allra stjórnarmanna.
Stjórn félagsins getur veitt heiðursmerki í viðurkenningaskyni fyrir vel unnin störf á sviði verkfræði eða í þágu félagsins.

6. gr. Innganga
Beiðni um inngöngu í félagið skal send stjórn félagsins skriflega.  Menntamálanefnd VFÍ fær til umsagnar allar umsóknir um inngöngu í félagið og metur þær samkvæmt þeim reglum sem stjórnin hefur samþykkt um meðferð umsókna, þar sem m.a. skal kveðið á um lágmarkskröfur sem gera skal til menntunar nýrra félagsmanna.  Ef umsögn menntamálanefndar er jákvæð ber stjórninni að veita umsækjanda aðild að félaginu.  Ef umsögn er neikvæð getur stjórnin ekki veitt viðkomandi aðild að félaginu, nema í undantekningartilvikum, t.d. ef viðkomandi getur ekki aflað tilskilinna gagna vegna styrjalda eða af stjórnmálalegum ástæðum.  Í slíkum tilvikum þarf stjórnin að samþykkja inngöngu samhljóða.

7. gr. Úrsögn
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg  og send félagsstjórn.  Úrsögn fær gildi 4 mánuðum eftir að hún berst félaginu. 
Eigi Kjararáð félagsins í kjaradeilum á þeim tíma sem úrsögn er að öðlast gildi, getur stjórn félagsins framlengt úrsagnarfrestinn þar til deilu lýkur.

8. gr. Réttindi og skyldur
Félagsmönnum er skylt að fara eftir lögum félagsins, siðareglum og öðrum samþykktum þess. Sérhver almennur félagi er skyldugur til að verða við kosningu til starfa í félaginu, nema gild forföll hamli, en getur neitað endurkjöri jafnlangan tíma og hann hefur gegnt störfum.
Almennir félagar hafa rétt til að kenna sig við félagið og nota skammstöfun félagsins með nafni sínu.  Almennir félagar og heiðursfélagar hafa rétt til að vera félagar í einni eða fleiri deildum félagsins með þeim takmörkunum sem lög þeirra segja til um.  Atkvæðisrétt um öll félagsleg málefni hafa almennir félagar, enda séu þeir skuldlausir við félagið, svo og heiðursfélagar.  Almennir félagar eru kjörgengir til stjórnarkjörs í félaginu.
Ungfélögum er heimil þátttaka í viðburðum á vegum félagsins.  Þeir hafa ekki önnur réttindi í félaginu. 

9. gr. Málskot
Ágreiningi, sem rísa kann á milli einstakra félagsmanna annars vegar og félagsstjórnar hins vegar um rétt eða skyldur félagsmanna má vísa til félagsfundar, og er úrskurður hans endanlegur. 
Komi félagsmaður fram á þann hátt að ekki samræmist tilgangi félagsins, hag eða heiðri getur stjórn lagt til að honum verði vikið úr félaginu.   Endanlega ákvörðun um brottrekstur tekur félagsfundur og þarf 2/3 atkvæða á félagsfundi þar sem slíkt mál er til meðferðar samkvæmt fundarboði.
 
10. gr. Skipulag félagsins
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins.  Starfsemi félagsins er stjórnað af stjórn undir forystu formanns.  Innan vébanda félagsins starfar Kjararáð sbr. gr. 12 og Ráð stjórnenda og sjálfstætt starfandi sbr. gr. 13. Deildir og fastanefndir starfa innan félagsins að ákveðnum málefnum. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra sem ræður sviðsstjóra og annað starfsfólk í samráði við stjórn.  Sviðsstjórar eru yfir Kjarasviði, Fagsviði og   Útgáfu- og markaðssviði.

11. gr. Stjórn
Í stjórn sitja:
Formaður kosinn til tveggja ára annað hvert ár.
Fjórir meðstjórnendur kosnir til tveggja ára annað hvert ár, tveir kosnir annað árið og tveir hitt árið. Tveir varamenn kosnir til tveggja ára, annar kosinn annað árið, hinn kosinn hitt árið. Endurkjör formanns er heimilt einu sinni.  Samfelld stjórnarseta getur mest verið 6 ár.
Kosning fer fram með skriflegum eða rafrænum hætti í aðdraganda aðalfundar.  Úrslit kosninga eru kynnt á aðalfundi.
Formaður er kosinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum.  Stjórnin setur sér starfsreglur. Auk kosinna stjórnarmanna og framkvæmdastjóra sitja formenn Kjararáðs og Ráðs stjórnenda og sjálfstætt starfandi fundi stjórnar með málfrelsi og tillögurétt. 

Ákvæði til bráðabirgða:  Á stofnfundi verði kosin stjórn hins sameinaða félags, formaður til eins árs og fjórir meðstjórnendur, sem verða þannig kosnir: tveir meðstjórnendur, kosnir til tveggja ára eða til aðalfundar ársins 2013 og tveir meðstjórnendur, kosnir til eins árs, eða til aðalfundar ársins 2012.  Tveir varamenn verði kosnir, annar til tveggja ára (til aðalfundar 2013), hinn til eins árs.

Fyrsta stjórn hins nýja félags tekur við undirbúningi að stofnun hins nýja félags á stofnfundi og tekur síðan  formlega til starfa um leið og félagið eða hinn 1. júlí 2011.

12. gr. Kjararáð
Kjararáð félagsins annast gerð kjarasamninga. Þeir félagsmenn sem eru launþegar á grundvelli laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eða laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna eru kjörgengir og hafa atkvæðisrétt í kosningu til Kjararáðs . Kjararáð skipar samninganefndir eftir þörfum. Kjararáð sér um vörslu vinnudeilusjóðs. Kjararáð gerir tillögu um ráðningu sviðsstjóra kjarasviðs.   
Kjararáð er skipað fimm félagsmönnum, sem kosnir eru í almennri bréflegri eða rafrænni
kosningu fyrir aðalfund til tveggja ára í senn, þrír annað árið en tveir hitt árið. Varamenn í Kjararáði eru tveir kosnir til tveggja ára, annar kosinn annað árið, hinn kosinn hitt árið. Formaður er kosinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir ráðið með sér verkum og setur sér starfsreglur. Samfelld seta í ráði getur mest verið 6 ár.
       
Ákvæði til bráðabirgða. Kjararáð skal fyrst kosið á stofnfundi í maí 2011 þannig að formaður er kosinn til eins árs, tveir aðalmenn til tveggja ára til 2013 og tveir til eins árs 2012. Tveir varamenn skulu kosnir annar til eins árs (til aðalfundar 2012), og einn varamaður til tveggja ára (til aðalfundar 2013).

 
13. gr. Ráð stjórnenda og sjálfstætt starfandi
Ráð stjórnenda og sjálfstætt starfandi hefur umsjón með og sinnir málefnum stjórnenda og sjálfstætt starfandi félaga innan VFÍ. Aðeins þeir sem tilheyra hópi stjórnenda og sjálfstætt starfandi eru kjörgengir og hafa atkvæðarétt í kosningu til ráðsins.

Ráð stjórnenda og sjálfstætt starfandi er skipað þremur félagsmönnum, sem kosnir eru í almennri bréflegri eða rafrænni kosningu fyrir aðalfund til tveggja ára í senn, tveir annað árið en einn hitt árið. Einn varamann skal kjósa  í ráð stjórnenda og sjálfstætt starfandi  til eins árs.
Formaður er kosinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir ráðið með sér verkum  og setur sér starfsreglur. Samfelld seta í ráði getur mest verið 6 ár.

Ákvæði til bráðabirgða. Ráð stjórnenda og sjálfstætt starfandi skal fyrst kosið á stofnfundi í maí 2011 þannig að formaður er kosinn til eins árs og einn aðalmaður  til tveggja ára (til aðalfundar 2013) og einn  aðalmaður til eins árs (til aðalfundar 2012). Einn varamaður kosinn til eins árs (til aðalfundar 2012).

14. gr. Deildir
Innan vébanda félagsins geta starfað deildir, svo sem sérgreinadeildir og landshlutadeildir. Sérgreinadeildir félagsmanna fjalla um málefni hinna ýmsu verkfræðigreina. Landshlutadeildir eru samtök félagsmanna, búsettra í einstökum landshlutum. Deildir mega ekki koma fram opinberlega í nafni félagsins nema með samþykki stjórnar. Stofnun deildar þarf samþykki stjórnar. Fyrir lok hvers starfsárs skulu deildir gefa stjórn skýrslu um starfsemi ásamt áætlunum um verkefni og fjárþörf þeirra fyrir næsta starfsár.

15. gr. Fastanefndir
Fastanefndir félagsins eru: Siðanefnd, menntamálanefnd, útgáfunefnd og húsnefnd.
Fastanefndir skulu skipaðar af stjórn til eins árs í senn og skal leitast við að þær endurspegli vilja og hugmyndir félagsmanna.  Fastanefndir skulu standa stjórn skil á starfsemi sinni.  Fyrir lok hvers starfsárs skulu fastanefndir gefa stjórn skýrslu um starfsemi ásamt áætlunum um verkefni og fjárþörf nefndanna fyrir næsta starfsár. 

16. gr. Siðanefnd
Siðanefnd skal starfa í félaginu.  Hlutverk hennar er að láta í ljós álit um ágreining, sem rísa kann vegna ætlaðs brots á siðareglum félagsins.  Nefndin kemur saman ef tilefni er til.  Siðanefnd starfar óháð stjórn félagsins og ákveður hvernig áliti nefndarinnar er komið á framfæri.  Í siðanefnd eiga sæti fimm fyrrverandi formenn VFÍ, þeir er síðast gegndu því starfi.  Fráfarandi formaður skal þó ekki sitja í nefndinni fyrr en að tveimur árum liðnum frá því að hann lét af formennsku.  Sé einhver nefndarmaður forfallaður tekur sá sæti í nefndinni sem gegndi starfi næst á undan þeim fimm o.s.frv.  Formaður siðanefndar er sá sem fyrstur nefndarmanna gegndi formennsku í félaginu.  Formaður kallar nefndina saman og stýrir fundum hennar. 

17. gr. Menntamálanefnd
Menntamálanefnd skal standa vörð um menntun verkfræðinga og fylgjast með því námi sem í boði er hér á landi á því sviði.  Menntamálanefnd skal vera stjórn félagsins til ráðuneytis um menntamál.  Hún skal hafa frumkvæði að því hvernig félagið getur beitt áhrifum sínum gagnvart yfirvöldum menntamála í því skyni að ná markmiðum félagsins.  Menntamálanefnd skal semja reglur um þær menntunarkröfur sem krafist er til inngöngu í félagið.  Þessar reglur skulu hljóta staðfestingu stjórnar og skulu síðan gefnar út.
Menntamálanefnd metur allar umsóknir um inngöngu í félagið sbr. 6. gr.
Aðeins þeir sem hafa leyfi ráðherra til þess kalla sig verkfræðing eru gjaldgengir til setu í menntamálanefnd.

18. gr. Útgáfunefnd
Útgáfunefnd skal vera sviðsstjóra útgáfumála til fulltingis um útgáfu fréttablaðs félagsins svo og önnur verkefni á því sviði. 

19. gr. Húsnefnd
Stjórn VFÍ skipar húsnefnd, sem annast rekstur hússjóðs. Markmið hússjóðs Verkfræðingafélags Íslands er að reka húseign félagsins að Engjateigi 9 í Reykjavík, sem heitir Verkfræðingahús. Hússjóður skal hafa aðskilinn fjárhag og sérstakt reikningshald. Fyrir lok hvers starfsárs skal húsnefnd leggja fram reikninga og skýrslu um starfsemi og afkomu hússjóðs ásamt áætlunum um framkvæmdir og fjárþörf sjóðsins fyrir næsta starfsár.

20. gr. Aðalfundur
Aðalfundur skal haldinn í marsmánuði ár hvert.  Aðalfund og aukaaðalfund skal boða bréflega eða rafrænt til allra félagsmanna með minnst 14 daga fyrirvara.  Dagskrá fundarins skal tilkynnt í fundarboði, svo og allar tillögur sem þurfa samþykki aðalfundar samkvæmt félagslögum.   Slíkar tillögur frá félagsmönnum skulu hafa borist stjórninni fyrir 15. febrúar. Verði á aðalfundi verulegar efnisbreytingar á áður kynntum tillögum skal afgreiðslu þeirra frestað og boðað til aukaaðalfundar eða alsherjaratkvæðagreiðslu.
Stjórn tilkynnir félagsmönnum eigi síðar en 1. febrúar, hverjir ganga úr stjórn og ráðum á næsta aðalfundi, og auglýsir eftir tillögum félagsmanna um stjórnar- og ráðsmenn. Þær tillögur skulu vera skriflegar og hafa borist stjórninni fyrir 15. febrúar. Að þeim fresti útrunnum, skal kynna formannsefnum uppástungur, sem borist hafa. Eigi síðar en með aðalfundarboði sendir stjórnin félagsmönnum kjörseðla með nöfnum allra þeirra, sem stungið hefur verið upp á.
Aðalfundur og aukaaðalfundur eru löglegir, sé löglega til þeirra boðað.  Skýrsla stjórnar skal liggja frammi á aðalfundi.

Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári
2. Reikningsskil
3. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda
4. Tillögur félagsstjórnar
5. Lýst kosningu stjórnar
6. Kjör endurskoðanda og skoðunarmanns
7. Lýst kosningu í kjararáð félagsins
8. Lýst kosningu í ráð stjórnenda og sjálfstætt starfandi
9. Laun formanns og stjórnarmanna
10. Lagabreytingar
11. Önnur mál

21. gr. Aukaðalfundur
Aukaaðalfund skal kalla saman þegar stjórninni þykir ástæða til eða þegar 200 félagsmenn eða fleiri óska þess skriflega.

22. gr. Félagsfundir
Félagsfundi skal boða þegar stjórn ákveður.  Stjórnin ákveður fundarefni og fundartíma.  Stjórn er skylt að boða til félagsfundar komi fram skrifleg krafa um það, þar sem fundarefni er tilgreint,  frá a.m.k. 200  félagsmönnum.  Félagsfundum stýrir kjörinn fundarstjóri.  Hann tilnefnir ritara.  Fundargerðir skal bóka.

23. gr. Allsherjaratkvæðagreiðsla
Stjórn félagsins getur látið fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu þegar henni þykir ástæða til eða a.m.k. 200 félagsmenn óska þess skriflega.  Með allsherjaratkvæðagreiðslu má taka ákvörðun um öll þau mál, sem aðalfundir einir geta annars tekið ákvörðun um.  Til samþykktar tillögu við slíka atkvæðagreiðslu þarf meira en helming greiddra atkvæða, nema um lagabreytingar, en þar þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.  Allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram skriflega eða með rafrænum hætti.  Öllum félagsmönnum skal senda kjörgögn og þær tillögur, er greiða skal atkvæði um og tilkynna skilafrest á atkvæðaseðlum.  Frestur þessi skal ekki vera skemmri en 2 vikur.  Atkvæðaseðlar skulu sendir í pósthólf eða á póstfang félagsins, og skal pósthólfsnúmer og tölvupóstfang fylgja kjörgögnum.  Þegar skilafrestur er útrunninn, skal stjórnin láta telja atkvæðin.  Stjórn félagsins skal birta úrslit allsherjaratkvæðagreiðslu skriflega eða með rafrænum hætti.

Kjararáð getur látið fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu með þeim hætti sem lýst er í 1. mgr. um boðun verkfalls, enda sé gætt ákvæða 15. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 eða 15. gr. laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 eftir því sem við á.  Einnig getur nefndin látið fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu  um afgreiðslu kjarasamninga, enda sé gætt ákvæða 5. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr.  80/1938 eða 23. gr. laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 eftir því sem við á.  Við allsherjaratkvæðagreiðslu á vegum Kjararáðs eru þeir einir atkvæðisbærir sem eiga beina aðild að viðkomandi deilu.

24. gr. Félagsgjöld
Aðalfundur ákveður almennt félagsgjald fyrir næsta almanaksár og gjöld til fastanefnda að fengnum tillögum stjórnar.  Gjalddagi félagsgjalda  er 1. apríl ár hvert.  Heimilt er að greiða árgjald með jöfnum afborgunum að höfðu samráði við skrifstofu.  Lendi félagsmaður í vanskilum með árgjald sitt er heimilt að láta hann bera innheimtukostnað auk vaxta. 

Skuldi félagsmaður árgjöld tveggja ára getur stjórnin fellt nafn hans af félagaskrá að undangenginni skriflegri viðvörun.  Félagsmaður öðlast félagsréttindi sín á ný þegar árgjaldaskuldin er að fullu greidd.

Félagar búsettir erlendis greiða hálft félagsgjald.  Ungfélagar, félagar sem eru í fullu námi og heiðursfélagar greiða ekki félagsgjöld.  Félagar eldri en 70 ára og félagar 65 ára og eldri sem hættir eru störfum borga 1/10 félagsgjalds. Stjórn getur tekið ákvörðun um eftirgjöf hluta félagsgjalda.

25. gr. Skrifstofa
Félagið rekur skrifstofu til þjónustu við félagsmenn.   Fyrir lok hvers starfsárs skal framkvæmdastjóri afhenda stjórn VFÍ framkvæmda- og rekstraráætlun fyrir næsta starfsár.

26. gr. Reikningar og endurskoðun
Reikningsár félagsins er almanaksárið.  Reikningar félagsins skulu vera endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda og félagslegum skoðunarmanni.  Skulu reikningar samþykktir á aðalfundi.

27. gr. Sjóðir
Vinnudeilusjóður  er í vörslu Kjararáðs.
Um  sjóði sem samið er um í kjarasamningum gilda sérstakar reglur.
Réttindi félagsmanna til greiðslna úr sjóðum eru háð því hvort félagsmenn greiða til viðkomandi sjóða eða ekki.
Aðrir sjóðir félagsins, skulu vera í vörslu stjórnar, og skal hún sjá um að þeir séu ávaxtaðir á tryggan hátt.  Um sérstaka sjóði félagsins skulu samdar reglur og skulu þær samþykktar á stjórnarfundi. 

28. gr. Gerðardómur
Félagið tekur að sér að skipa gerðardóm til þess að fella fullnaðarúrskurð um ágreining í tæknilegum málum.  Reglur um skipun og störf slíks gerðardóms skulu vera í samræmi við lög um samningsbundna gerðardóma nr. 53/1989.

29. gr. Lagabreytingar
Breytingar á lögum þessum má eingöngu gera á aðalfundi eða með allsherjaratkvæðagreiðslu.  Tillögur um lagabreytingar, sem leggja á fyrir aðalfund skulu birtar í fundarboði.  Til lagabreytinga sem bornar eru undir aðalfund þarf 2/3 greiddra atkvæða.  Sama gildir í allsherjaratkvæðagreiðslu.  Ef innan við 10% félagsmanna taka þátt í atkvæðagreiðslu á aðalfundi um grundvallarbreytingu á VFÍ, svo sem sameiningu við önnur félög, reglur um félagsaðild eða mikilvægar ákvarðanir um fjármál VFÍ eða sjóða þess öðlast slík ályktun ekki gildi, nema hún verði samþykkt með 2/3 greiddra atkvæða á næsta aðalfundi.  Eigi má selja eða veðsetja fasteign í eigu félagsins án samþykkis aðalfundar og þarf 2/3 greiddra atkvæða.  Stjórn getur látið fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu ef að mati hennar er óheppilegt að bíða með að fá lagabreytinguna afgreidda.  Lagabreytingar skulu birtar félagsmönnum.

30. gr. Félagsslit
Félaginu verður því aðeins slitið að félagsslitin séu samþykkt á sama hátt og gildir um lagabreytingar.
Félagsfundur tekur ákvörðun um ráðstöfun eigna félagsins.


Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica