Fengu heiðursviðurkenningu VFÍ - 22. apr. 2016

Nýverið var Júlíus Sólnes gerður að heiðursfélaga Verkfræðingafélags Íslands, sem er æðsta viðurkenning félagsins. Við sama tækifæri voru þrír einstaklingar sæmdir heiðursmerki félagsins. Þau eru Guðni A. Jóhannesson, Helgi Þór Ingason og Sigrún Pálsdóttir.

Orlofssjóður - sumarúthlutun - 14. apr. 2016

Orlofssjóður VFÍ hefur tekið í notkun nýjan bókunarvef fyrir orlofshúsin „Frímann" og verður hann notaður í fyrsta sinn við sumarúthlutun 2016. - Tímabilið 3. júní 2016 til 2. september 2016. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 26. apríl. Nánari upplýsingar voru sendar sjóðfélögum með tölvupósti.

Athugið að punktastaða verður ekki birt fyrr en greiðslusíða opnar 21. apríl.

Nánari upplýsingar.

Aðalfundur VFÍ - Nýr formaður - 8. apr. 2016

Aðalfundur VFÍ var haldinn 8. apríl 2016.  Páll Gíslason  er nýr formaður félagsins. Nýr formaður Kjaradeildar VFÍ er Birkir Hrafn Jóakimsson og  Sveinn I. Ólafsson var endurkjörinn formaður Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi. Afkoma VFÍ á árinu var góð og met var slegið í fjölda umsókna um inngöngu í félagið, voru 107 fleiri en á fyrra ári.


Ársskýrsla VFÍ 2015-2016.

Aðalfundur VFÍ 2016 - 5. apr. 2016

Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn 8. apríl kl. 16. Sjálfkjörið er í stjórnir félagsins en tillögur fyrir aðalfund og framboð til stjórnar áttu að berast fyrir 15. febrúar.


Stjórn leggur til breytingu á lögum félagsins. Hún varðar aðild ungfélaga á þann hátt að ekki verði skilyrði að þeir hafi lokið einu ári í námi heldur að þeir stundi nám. Þar með geta nemendur á fyrsta ári orðið ungfélagar.