Páskaúthlutun Orlofssjóðs VFÍ

Umsóknarfrestur er til 28. febrúar.

8. feb. 2022

Nú gefst kostur á að sækja um dvöl í orlofshúsum OVFÍ um páskana 2022.

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar. Stefnt er að því að úthluta þriðjudaginn 1. mars.

Leigutíminn er 14. - 21. apríl 2022. Orlofsleiga er kr. 20.000.- (Nema stóra húsið, Álfasteinssund 21 í Hraunborgum kostar kr. 25.000.-).

Sem fyrr er úthlutað eftir punktaeign sjóðfélaga.

Punktafrádráttur er eins og að sumri og í vetrarfríum grunnskólanna, þ.e. 36 punktar. (Við almenna vetrarleigu er frádrátturinn 3 punktar).

Sótt er um á orlofsvef VFÍ: http://www.orlof.is/vfi/ (velja:„Umsókn um úthlutun" á stikunni efst).

Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/

Athugið að neðst á þeirri síðu eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn og sækja um.