Fréttir

FRUMHERJAR Í VERKFRÆÐI

10/2/02

Á þessu ári eru liðin 90 ár frá stofnun Verkfræðingafélags Íslands. Í tilefni af þessum tímamótum var ákveðið að gefa út tíu binda ritröð sem hefst á riti um frumherjana í verkfræði hér á landi. Eitt rit mun koma út á ári hverju og lýkur ritröðinni með 100 ára sögu Verkfræðingafélagsins.
Nú er handrit að bókinni um frumherjana nánast tilbúið og annað ritið í röðinni, sem fjallar um brýr, er vel á veg komið. Höfundur beggja þessara rita er Sveinn Þórðarson, sagnfræðingur en honum til aðstoðar eru ritnefndir úr röðum verkfræðinga.
Gert er ráð fyrir að ritið um frumherjana komi út í lok október. Þar er sagt frá 40 fyrstu verkfræðingunum hér á landi. Einnig er lýst aðstæðum á Íslandi og þróun í Evrópu á seinni hluta 19. aldar. Lögð var áhersla á að ritið væri skemmtilegt og auðlesið en ekki eingöngu sagnfræðilegur fróðleikur. Bókina munu prýða fjöldi mynda.
Þeir sem vilja tryggja sér bókina geta pantað hana á skrifstofu VFÍ.
Senda grein

Fréttir eftir árum


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica