Munið að sækja um líkamsræktarstyrk

Sjóðir VFÍ fullnýta heimildir ríkisskattstjóra til skattleysis.

1. nóv. 2023

Athugið að sækja tímanlega um styrki til líkamsræktar. Umsóknir þurfa að berast fyrir 1. desember ef nýta á rétt til skattleysis á árinu. Sjóðurinn fullnýtir heimildir ríkisskattstjóra til skattleysis slíkra styrkja sem er að hámarki 71.500.- krónur á árinu 2023 miðað við áunnin réttindi hvers sjóðfélaga til heilsustyrks.

Almennt gildir að forsenda endurgreiðslu er framvísun fullgildra greiðslukvittana vegna útlagðs kostnaðar. Kvittunin þarf að vera útgefin af söluaðila. Þar þarf að koma fram nafn og kennitala bæði sjóðfélaga og seljanda. Einnig þarf að koma fram hvað er verið að greiða fyrir.

Við hvetjum sjóðfélaga í Sjúkrasjóði VFÍ (almennur markaður) og Styrktarsjóði VFÍ (opinber markaður) að kynna sér starfsreglur sjóðsins.

Sótt er um rafrænt á vef VFÍ í gegnum "Mínar síður". Þar er einnig hægt að sjá stöðu réttinda.