• VFI_heidur_1-1-

Fengu heiðursviðurkenningu VFÍ

Nýr heiðursfélagi og tveir fengu heiðursmerki VFÍ.

21. nóv. 2022

Nýverið var Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur gerð að heiðursfélaga Verkfræðingafélags Íslands sem er æðsta viðurkenning félagsins. Við sama tækifæri voru Björn Marteinsson byggingaverkfræðingur og Kristinn Andersen rafmagnsverkfræðingur sæmdir heiðursmerki félagsins. 

Guðrún Hallgrímsdóttir er önnur konan í 110 ára sögu Verkfræðingafélagsins til að hljóta þá sæmd að vera gerð að heiðursfélaga. Hin konan er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands.

Heiðursfélagi Verkfræðingafélags Íslands er sæmdarheiti, sem aðeins hlotnast einstaklingum, sem leyst hafa af hendi sérlega mikilsverð störf á sviði félagsmála VFÍ eða frábær verkfræði- eða vísindastörf. Frá árinu 1943 hafa 27 einstaklingar  hlotið þessa viðurkenningu.

Heiðursmerki VFÍ má veita í viðurkenningarskyni fyrir vel unnin störf á sviði verkfræði eða vísinda, fyrir framtak til eflingar verkfræðingastéttinni í heild eða fyrir félagsstörf í þágu verkfræðingastéttarinnar. Alls hafa 127 einstaklingar  hlotið heiðursmerki VFÍ.

Á myndinni eru frá vinstri, Svana Helen Björnsdóttir formaður VFÍ, Björn Marteinsson, Guðrún Hallgrímsdóttir. Kristinn Andersen og Árni Björn Björnsson, framkvæmdastjóri VFÍ.

VFI_heidur_4_2Umsagnir sem ritaðar voru í viðurkenningarskjölin eru hér fyrir neðan.

Guðrún Hallgrímsdóttir.

Björn Marteinsson.

Kristinn Andersen.