Nýr kjarasamningur við FRV samþykktur

Rafræn atkvæðagreiðsla fór fram 2. - 6. janúar.

6. jan. 2023

Kjarasamningur Verkfræðingafélags Íslands við Félag ráðgjafarverkfræðinga hefur verið samþykktur.
Nýi samningurinn nær einnig til félagsmanna í Stéttarfélagi byggingafræðinga og Stéttarfélagi tölvunarfræðinga.

Verkfræðingar og tæknifræðingar sem starfa á FRV verkfræðistofum samþykktu nýjan kjarasamning við Félag ráðgjafarverkfræðinga, en rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn fór fram 2.– 6. janúar.

Alls voru 668 á kjörskrá og greiddu 448 af þeim atkvæði eða 67,1%

Af 448 sem tóku afstöðu samþykktu 381 eða 85% samninginn.
Nei sögðu 58.
Níu skiluðu auðu.

Kjarasamningur VFÍ við FRV 2022.