Fréttir
Guðfinna ráðin rektor nýs sameinaðs háskóla
Dr. Guðfinna S. Bjarnadóttir, núverandi rektor Háskólans í Reykjavík, verður rektor nýs háskóla sem verður til við sameiningu Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.Starfsfólki skólanna var tilkynnt um ráðningu Guðfinnu á sameiginlegum fundi á Hótel Nordica 18. desember s.l. Á fundinum voru jafnframt kynnt áform um stofnun tækni- og verkfræðideildar þar sem meðal annars verður bryddað upp á þeim nýjungum hér á landi að kenna sérstaklega rekstrarverkfræði, fjármálaverkfræði, hugúnaðarverkfræði og heilbrigðisverkfræði. Einnig er fyrirhugað að stofna kennslufræðideild þar sem, auk hefðbundinnar kennaramenntunar, verður sérstök áhersla lögð á að útskrifa kennara með góðan undirbúning til að kenna stærðfræði og raungreinar auk kennslu á íþrótta- og lýðheilsusviði. Einnig verða starfræktar viðskiptadeild og lagadeild við skólann.
Deildarforseti tækni- og verkfræðideildar verður dr. Bjarki A. Brynjarsson.
Stefanía Katrín Karldóttir, núverandi rektor THÍ, sóttist ekki eftir starfi við hinn sameinaða skóla. Hún hyggst ljúka doktorsnámi sínu á næstu misserum, sinna ýmsum ráðgjafa og stjórnunarstörfum og halda í kjölfarið til starfa á öðrum vettvangi.
