Fréttir
Framadagar í febrúar
Framadagar verða haldnir 4. febrúar 2005 á annarri hæð Hótel Sögu. Þeir munu standa yfir frá 10:00 - 17:00.Þetta er í ellefta sinn sem Framadagar eru haldnir. Þar geta fyrirtæki kynnt starfsemi sína og sett sig í samband við starfsmenn framtíðarinnar. AIESEC, alþjóðlegt félag háskólanema stendur að framkvæmd daganna og skipar í Framadaganefnd. Í ár hefur nefndin verið stækkuð til að gera dagana sem glæsilegasta og telur hún ellefu manns úr hinum ýmsu deildum.
Framadagar eru kynningarhátíð sem hefur þann tilgang að koma á tengslum á milli atvinnulífsins og háskólanema í landinu. Dagarnir eru haldnir að erlendri fyrirmynd og hugsaðir sem vettvangur þar sem stúdentar geta kynnt sér það sem hæst ber í atvinnulífinu og um leið tækifæri fyrirtækja til að komast í kynni við ungt og metnaðarfullt menntafólk. Framtíðarmarkmið Framadaga er að sem flestir háskólanemar, óháð skóla eða námsbraut, njóti góðs af þeim og að Framadagar geti áfram verið mótsstaður öflugra samskipta atvinnurekenda og námsfólks.
