Fréttir
Samkeppni um skipulag spítalalóðar
Þann 18. janúar 2005 ákvað ríkisstjórn Íslands að heimila að efnt yrði til skipulagssamkeppni um lóð Landspítala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut í Reykjavík og að vinna að frekari undirbúningi að skipulagi spítalasvæðisins.Tilkynning um skipulagssamkeppnina var send til Evrópska efnahagssvæðisins 19. janúar 2005 og forval verður formlega auglýst á Íslandi 30. janúar 2005. Í forvalinu verða valin allt að sjö teymi sérfræðinga sem hafa mikla þekkingu á starfsemi sjúkrahúsa og reynslu af sambærilegum verkefnum. Lýkur forvali í byrjun apríl og hefst þá vinna hópanna við gerð samkeppnistillagna. Haustið 2005 verða tillögurnar og niðurstöður dómnefndar kynntar. Það er Landspítali - háskólasjúkrahús sem er verkkaupi. Umsjón með framkvæmdunum hefur Framkvæmdasýsla ríkisins og er verkefnisstjóri hjá FSR Ásdís Ingþórsdóttir.
Frá þessu er sagt á vef Framkvæmdasýslu ríkisins. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um verkefnið. Vefur Framkvæmdasýslunnar