Vetrarleiga Orlofssjóðs VFÍ

Nú er hægt að bóka orlofsvikur fram í miðjan maí 2024.

27. jún. 2023

Hægt er að bóka orlofsvikur frá lokum ágústmánaðar 2023 til 17. maí 2024 á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi

 

Að gefnu tilefni viljum við biðja sjóðfélaga að ganga vel um og láta vita ef eitthvað skemmist í bústöðunum.

Um vetrarleigu gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Eins og áður verður vetrarfrísvikum grunnskólanna úthlutað sérstaklega. Um er að ræða vikuna: 26. október til 2. nóvember 2023 og vikuna 15. - 22. febrúar 2024. Páskavikunni 28. mars til 4. apríl 2024 verður einnig úthlutað sérstaklega.

Í vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr úthlutað eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Eins og áður að vetri eru orlofshúsin leigð frá fimmtudegi til fimmtudags. Hver sjóðfélagi getur bókað eina orlofsviku fyrir áramót og aðra eftir áramót.

Athugið að orlofsvikur fást ekki endurgreiddar.

Teknir verða 3 punktar fyrir hverja orlofsleigu að vetri, vikan kostar kr. 25.000.- Nema stærsta húsið í Hraunborgum kostar kr. 30.000.-

Athugið að einungis er heimilt að vera með gæludýr í Klapparholti 8 og 10.

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/