Fréttir

Sameinaður háskóli: Háskólinn í Reykjavík

8.3.2005

Þann 4. mars sl. var tilkynnt að Tækniháskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík sameinast undir nýju merki og nafni Háskólans í Reykjavík. Alþingi samþykkti nýverið að heimila samruna háskólanna með því að fella úr gildi lög um Tækniháskóla Íslands.

Háskólinn í Reykjavík mun bjóða upp á nám í viðskiptafræði, tölvunarfræði, tæknifræði, verkfræði, lögfræði, kennslufræði, lýðheilsufræði og frumgreinum. Umsóknarfrestur í grunnnám er til 27. maí nk. Búist er við nemendur við skólann verði nálægt 2.500 og mun sameinaður háskóli taka til starfa með skólasetningu 19. ágúst nk.

Húsnæði skólans verður fyrst í stað á tveimur stöðum, þ.e. við Ofanleiti og Höfðabakka, en unnið er að því að velja sameinuðum háskóla nýjan framtíðarstað og er þá einkum verið að meta Vatnsmýrarsvæðið í Reykjavík annars vegar og Urriðaholt í Garðabæ hins vegar.

Senda grein

Fréttir eftir árum


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica