Fréttir
Hönnunaraðferðir - fjarnám
Í samstarfi við ENSÍM (Endur- og símenntunarnefnd VFÍ, TFÍ og SV) og menntamálanefnd Arkitektafélags Íslands býður Endurmenntun HÍ upp á námskeiðið: Hönnunaraðferðir, bestun og áreiðanleiki - FjarnámNámskeiðið er einkum ætlað arkitektum, hönnuðum, teiknurum, tæknifræðingum og verkfræðingum. Markmiðið er að þátttakendur læri að beita kerfisbundnum hönnunaraðferðum við ákvarðanatöku í hönnun og skipulagningu. Kynntar eru aðferðir sem notaðar eru við lausn vandamála (Problem Solving) og bestun við ákvarðanatöku. Fjallað er um líkanagerð, áreiðanleika, öryggi og áhættumat. Áhersla er lögð á að þátttakendur leysi fjölbreytt hönnunarverkefni.
Kennari: Magnús Þór Jónsson prófessor við verkfræðideild HÍ.
Tími: Fjarnámið stendur frá 5. til 19. apríl.
Verð: 40.100 kr.
