Fréttir

Ráðstefna: Grunngerð landupplýsinga

12.4.2005

LÍSU samtökin halda hádegisráðstefnu á Grand Hótel, Reykjavík miðvikudaginn 4. maí, kl. 11:00-14:00. Meginþema ráðstefnunnar er grunngerð landupplýsinga, mikilvægi samræmingarverkefna.

Tilefni ráðstefnunar er 10 ára afmæli nokkurra vinnunefnda eða verkefna á vegum LÍSU samtakanna. Í tilefni tímamótanna þykir rétt að staldra við og meta hvað hefur áunnist og hvað er framundan.

Meðal þess verður á dagskrá eru ný verkefni Orðanefndar LÍSU á sviði skilgreininga, erindi frá Fagráði Landlýsingar um aðgengi að lýsigögnum, Frá Tækninefnd LÍSU og Fagráðs í upplýsingatækni verður kynnt LU flokkun, auglýsing á staðlafrumvarpi. Einnig verður erindi um vefsjár.

Tillögur um erindi. LÍSU félagar sem hafa áhuga á að halda erindi um samræmingarverkefni á sviði landupplýsinga eru beðnir um að hafa samband: lisa@ust.is, sími: 591 2070 og 6630 176.

Senda grein

Fréttir eftir árum


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica