Fréttir

Nýjar tilskipanir ESB um opinber innkaup

15.4.2005

Ráðstefna um breytingar í lagaumhverfi opinberra innkaupa. Grand Hótel Reykjavík 28. apríl 2005

Á ráðstefnunni verður farið yfir þær fjölmörgu og veigamiklu breytingar sem eru í nýjum tilskipunum Evrópusambandsins um opinber innkaup. Megin áherslan í umfjölluninni verður á: Innleiðingu og gildistöku tilskipananna á Íslandi, megin breytingar í útboðsferlinu, ábyrgð vegna brota á útboðsreglum, samningskaup og samningskaupa ferlið, kærunefnd útboðsmála og samræmd innkaup s.s. rammasamninga.

Þátttökugjald er kr. 27.000.-, innifalið kaffi og hádegisverður. Nánari upplýsingar í síma: S. 5254254. Einnig á vef Ríkiskaupa. Ríkiskaup

Skráning

Allir fyrirlesarar eru meðal fremstu sérfræðinga í lögum um opinber innkaup. Aðalfyrirlesari verður prófessor við háskólann í Nottingham, Sue Arrowsmith. Einnig prófessor Steen Treumer Ph.D, deildarforseti við Copenhagen Business School og íslenskir lögfræðingar með sérþekkingu á þessu sviði þeir Skúli Magnússon héraðsdómari og Othar Örn Petersen hrl. frá LOGOS, en þeir munu skoða málið frá íslensku sjónarhorni.

Ráðstefnan fer fram á ensku.

Senda grein

Fréttir eftir árum


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica