Fréttir
OR styrkir fjórar konur til náms
Nýverið afhenti Orkuveita Reykjavíkur fjórum konum styrk til að stunda nám í verkfræði og tæknifræði og í tilteknum iðngreinum. Þetta er í níunda sinn sem slíkir styrkir eru veittir og í þriðja sinn sem styrkveitingar ná einnig til kvenna í ákveðnum iðngreinum.Styrkþegar að þessu sinni eru Hildur Æsa Oddsdóttir, nemi í véla- og iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands, Sonja Dögg Dawson, nemi í byggingatæknifræði við Tækniskóla Íslands eða Háskólann í Reykjavík, Berglind Leifsdóttir sem er að læra rafvirkjun við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og Oddný Ágústa Hávarðardóttir, einnig nemi í rafvirkjun við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Hljóta þær allar 225.000 krónur.
Vatnsveita Reykjavíkur stofnaði til styrkveitinganna 1997 í þeim tilgangi að stuðla að aukinni sókn kvenna í nám í verkfræði og tæknifræði. Eftir sameiningu veitufyrirtækjanna í árið 2000 var ákveðið að halda styrkveitingunum áfram í nafni Orkuveitunnar í ljósi þess markmiðs að jafna hlut kynja í sérfræði- og stjórnunarstörfum. Á árinu 2003 samþykkti stjórn Orkuveitunnar að auglýsa einnig styrki fyrir konur í hefðbundnum iðngreinum sem nýtast Orkuveitunni, svo sem vélsmíði og vélstjórn, rafvirkjun, múrararaiðn eða pípulögnum.
Í ár bárust 27 umsóknir, þar af fimm vegna iðnnámsins. Hlutur kvenna við nám í verkfræði hefur vaxið hröðum skrefum á síðustu árum. Innan verkfræðideildar HÍ er hann nú um 30% en fyrir níu árum var hann aðeins 14,3%. Þá hefur hlutur kvenna í Verkfræðingafélagi Íslands vaxið á sama tíma úr 4,6% í 7,8%. Fjöldi kvenna innan Tæknifræðingafélagsins hefur þrefaldast á þessum níu árum. Hlutur kvenna innan þeirra iðngreina sem Orkuveitan hefur hvað mest not fyrir er enn mjög rýr og ljóst að langt er í land að Orkuveitan nái að jafna hlut kynja í þeim störfum nema konur sæki í iðnnám í þessum greinum í mun meira mæli en þær hafa hingað til gert. Af iðnlærðum félögum í Rafiðnaðarsambandinu eru konur aðeins um 1,2%, svo dæmi sé tekið, en Rafiðnaðarsambandið hefur beitt sér sérstaklega fyrir því hvetja konur til náms í rafiðnaðargreinum. (Heimild: Heimasíða Orkuveitu Reykjavíkur: www. or.is)
