Fréttir

Meistaranám við Háskólann í Reykjavík

5/8/07

Í meistaranáminu eru fjögur megináherslusvið: Framkvæmdastjórnun með áherslu á þverfaglega tengingu við lögfræði og viðskiptafræði. Mannvirkjahönnun með áherslu á hönnun, burðarvirkja-greiningu og sérhæfða byggingarefnis- og byggingareðlisfræði. Steinsteyputækni (Concrete Technology) Námið er sérhæft og eru nemendur að stórum hluta MSc, PhD eða post-doc nemar frá erlendum samstarfsskólum. Umferð og skipulag með áherslu á umhverfis- og skipulagsmál, umferðar- og samgöngumál, veghönnun og vegagerð.

Námið er afar framsækið og stefnt er að því að það verði í sífelldri þróun í takt við síbreytilegt umhverfi nútíma tæknisamfélags.

Námið er skipulagt með það í huga að: · faglegar kröfur miðist við fremstu háskóla erlendis · námið svari þörfum íslensks byggingariðnaðar · nemendur læri að setja sig hratt inn í fjölbreytt verkefni · námið auki færni nemenda til þverfaglegs samstarfs · námið auki færni nemenda til alþjóðlegs samstarfs

Frekari upplýsingar um skipulag námsins og einstök námskeið er að finna á vefslóð Háskólans í Reykjavík

eða hjá Ingunni Sæmundsdóttur, ingunn@ru.is

Senda grein

Fréttir eftir árum


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica