Fréttir
Ritröð VFÍ - ný bók
Önnur rit
Á 90 ára afmæli VFÍ var ákveðið að ráðast í útgáfu ritraðar sem ráðgert er að ljúki með útgáfu á Sögu Verkfræðingafélags Íslands á hundrað ára afmæli félagsins 19. apríl 2012. Í ritröðinni er fjallað um hin ýmsu svið sem verkfræðingar hafa starfað á en afar lítið er til að slíku efni á íslensku. Í upphafi var mörkuð sú stefna að ritin skuli vera auðlesin, fróðleg og skemmtileg og höfða til almennings jafnt sem verkfræðinga. Bækurnar prýðir fjöldi mynda.
Auk bókarinnar Verkin sýna merkin hafa eftirtalin rit komið út og fást á skrifstofu VFÍ.
Sementsiðnaður á Íslandi í 50 ár. VFÍ stóð í upphafi fyrir umræðum um að hefja framleiðslu sements á Íslandi. Íslendingar urðu síðar frumkvöðlar á ýmsum sviðum framleiðslunnar og voru til dæmis fyrstir til að nýta kísilryk til að auka gæði sementsins.
Brýr að baki. Brýr á Íslandi í 1100 ár. Í bókinni er varpað nýju og óvæntu ljósi á ýmislegt í sögu brúargerðar á Íslandi. Dregnar eru fram fjölmargar heimildir sem legið höfðu rykfallnar á söfnum. Bókin er prýdd fjölda mynda sem fæstar hafa birst áður.
Í ljósi vísindanna. Saga hagnýtra rannsókna á Íslandi. Viðfangsefni bókarinnar eru hagnýtar rannsóknir í þágu atvinnuveganna. Í ritinu er rakinn aðdragandinn að stofnun Atvinnudeildar Háskólans og Rannsóknaráðs ríkisins á fjórða áratug síðustu aldar. Þá er fjallað um rannsóknastofnanir atvinnuveganna sem spruttu af Atvinnudeildinni.
Afl í segulæðum. Saga rafmagns á Íslandi í 100 ár. Bókin kom út árið 2004. Þá var liðin öld frá því lítil vatnsaflsvirkjun í Hamarkotslæk í Hafnarfirði hóf raforkuframleiðslu og var fyrsti vísirinn að rafmagnsveitu á Íslandi. Í bókinni er sögð saga rafvæðingarinnar á Íslandi, bæði upphafsárin og samveitutímabilið sem og saga iðnaðaruppbyggingar seinni ára.
Frumherjar í verkfræði á Íslandi. Bókin kom út á 90 ára afmæli félagsins árið 2002. Þar er rakin saga þeirra manna sem ruddu æðri verkþekkingu braut á Íslandi og hringdu inn nýja öld framfara í verklegum efnum. Bókin er ómetanleg heimild um störf og aðstæður verkfræðinga í upphafi 20. aldar og gefur raunsanna mynd af þjóðfélaginu í heild og þróun þess frá örbirgð til bjargálna.
Bækurnar fást á skrifstofu VFÍ. Upplýsingar og pantanir í síma: 535 9300 og með tölvupósti: skrifstofa@verktaekni.is.
