Vetrarleiga OVFÍ

Orlofsvikur eru ekki endurgreiddar. Inneign getur myndast að hámarki 75%.

12. ágú. 2016

Frá og með föstudeginum 12. ágúst kl. 15:00 verður hægt að bóka orlofsvikur frá 2. september 2016 til 18. maí 2017 á orlofsvef OVFÍ.

Um vetrarleigu gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara  myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

 

Eins og áður verður vetrarfrísvikum grunnskólanna úthlutað sérstaklega. Um er að ræða vikururnar:  20. október 2016 til 3. nóvember 2016 og 16. febrúar 2017 til 2. mars 2017. Páskavikunni 13. apríl til 20. apríl 2017 verður einnig úthlutað sérstaklega. Í vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr  úthlutað  eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Eins og áður eru orlofshúsin leigð frá fimmtudegi til fimmtudags. Hver félagsmaður getur bókað eina orlofsviku fyrir áramót og aðra eftir áramót. Athugið að orlofsvikur fást ekki endurgreiddar. 

Teknir verða 3 punktar fyrir hverja orlofsleigu, vikan kostar kr. 16.500.- 

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.