Dagur verkfræðinnar 2017

Föstudaginn 7. apríl á Hilton Reykjavík Nordica.

31. jan. 2017

Dagur verkfræðinnar verður haldinn í þriðja sinn föstudaginn 7. apríl á Hilton Reykjavík Nordica. Við leitum til félagsmanna og köllum eftir hugmyndum og tillögum að fyrirlestrum. Einnig viljum við gjarnan fá fleiri félagsmenn í undirbúningsnefndina.

Sem fyrr er stefnt að fjölbreyttri og spennandi dagskrá. Dagskráin hefst kl. 13 og verða fyrirlestrar og kynningar í tveimur opnum fundasölum.

Markmiðið með Degi verkfræðinnar er að kynna verkfræðina, spennandi verkefni og störf á því sviði og ekki síst efla tengsl og samheldni meðal íslenskra verkfræðinga og tæknifræðinga.

Dagur verkfræðinnar hefur vakið athygli og verið vel sóttur af félagsmönnum VFÍ og öðru áhugafólki.

Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Ábendingar og tillögur vegna Dags verkfræðinnar 2017 má senda með tölvupósti: sigrun@verktaekni.is