Fréttir
Gagnasöfn og rafræn tímarit
Fyrir tilstilli verkfræðideildar HÍ og nokkurra fyrirtækja í landinu er nú landsaðgangur að EiVillage með Compendex, ásamt tímaritasöfnum ASCE og ASME. Nýlega bættist við aðgangur að Journal of Geotechnical & Geoenvironmental Engineering hjá ASCE.
Sveinn Ólafsson, umsjónarmaður landsaðgangsins, mun kynna aðganginn á Samlokufundi 15. mars næstkomandi. Fundurinn hefst kl. 12:00 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.
Allir velkomnir. Félagsmenn í VFÍ og TFÍ fá samlokur og drykki án endurgjalds en aðrir geta keypt veitingarnar á sanngjörnu verði.
