Fréttir
NORDNET 2007
Alþjóðleg ráðstefna á sviði verkefnastjórnunar
Verkefnastjórnunarfélag Íslands mun í ár sjá um sameiginlega ráðstefnu norrænu verkefnastjórnunarfélaganna – NORDNET 2007. Ráðstefnan verður haldin 26. – 28. september n.k. undir yfirskriftinni: „Projects under risk”. Áhætta í sinni fjölbreytilegustu mynd er viðfangsefni ráðstefnunnar. Fjöldi fyrirlesara úr atvinnugreinum fjármála og tækni, auk vísindasamfélagsins flytja erindi. Tveir aðalfyrirlesaranna eru heimsþekktir fræðimenn á sínu sviði og koma hvor úr sinni áttinni; fjármálum og verkfræði. Á vegum Háskólans í Reykjavík og JPV forlagsins munu koma út tvær bækur í tilefni af ráðstefnunni og er önnur þeirra brautryðjendaverk á sviði áhættustjórnunar hér á landi.
