Sameiginlegar

Þrjú námskeið í þessari viku

Námskeiðin verða haldin í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 9-12.

21.2.2009

Skráning er á skrifstofu félaganna, sími: 535 9300.

Félag stjórnenda og sjálfstætt starfandi í TFÍ (STFÍ) vann að undirbúningi og er fjárhagslegur bakhjarl námskeiðanna.

Mánudagur 2. mars: Traust.

Í umróti undafarinna mánaða hefur traust nánast gufað upp í þjóðfélaginu á Íslandi. Traust til stjórnvalda, stofnana, ráðamanna, fyrirtækja og einstaklinga hefur rýrnað hratt. Nauðsynlegt er að byggja hratt og markvisst aftur upp traust helstu hagsmunaaðila. Sögulega hefur traust verið flokkað með „mjúku málunum“ í fyrirtækjarekstri en nýlegar rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að traust hefur beina fylgni við framleiðni og hagnað fyrirtækja. Í bók sinni „The Speed of Trust“ segir Stephen M. R. Covey: „The serious practical impact of the economics of trust ist that ... we are paying a hidden low-trust tax right off the top – and we don´t even know it!“

Franklin Covey vinnustofan „Working at the Speed of Trust“ miðað að því að hjálpa þátttakendum að:

  • Auka eigin áreiðanleika
  • Auka traust í samskiptum við samstarfsaðila og viðskiptavini
  • Sýna hegðun sem eykur traust
  • Skapa umhverfi trausts með það að markmiði að efla sköpun, frumkvæði og skuldbiningu starfsmanna við að ná sameiginlegum árangri.

Leiðbeinandi: Kristinn Tryggvi Gunnarsson, ráðgjafi.

Miðvikudagur 4. mars: Fjármál - úrlausn fjárhagslegra vandamála.

Fjallað verður helstu ákvarðanir um fjármál sem dæmigert heimili þarf að fást við. Farið verður í gegnum nokkur grunnatriði og hugtök fjármála og þau tengd við algeng viðfangsefni með dæmum. Helstu tegundir lána verða útskýrðar og að hvaða leiti þau eru ólík. Rætt verður um hvaða sjónarmið ætti að hafa í huga þegar teknar eru ákvarðanir og hvað ber að forðast. Námskeiðið hjálpar einstaklingum til að auka skilning á fjárhagslegum vanda, hvernig megi takast á við hann, og hvaða úrræði standa til boða. Einnig verður fjallað um mikilvægi samningatækni þegar kemur að lausn fjárhagslegra vandamála.

 Helstu atriði:
• Helstu hugtök fjármála og tegundir lána
• Hvaða aðferðum skal beita til að taka góðar fjárhagslegar ákvarðanir
• Hver eru einkenni fjárhagslegs vanda og hvernig tekst maður á við hann
• Samningatækni við úrlausn vandamála og úrræði sem standa til boða

 Leiðbeinandi: Sigurður Erlingsson, M. Sc. Stundakennari við HR.

 

Föstudagur 6. mars: Persónuleg markmiðasetning.

 Persónuleg markmiðasetning er mikilvægt tæki til að ákveða hvað er mikilvægt í lífi þínu, greina á milli þess sem er mikilvægt og þess sem er það ekki, hvetja sjálfa(n) þig til að taka af skarið og auka sjálfstraust þitt með því að ná mælanlegum árangri.
En til þess að geta sett okkur spennandi markmið verðum við að þekkja sjálfan okkur, gera okkur grein fyrir lífsgildum okkar og löngunum.  Fyrsta skrefið í persónulegri markmiðasetningu er að ákveða hverju þú vilt áorka í lífinu – hvað þú vilt upplifa í lífinu – og láta það marka rammana utan um allt annað.

Leiðbeinandi:  Halldóra Hinriksdóttir (MBA), hún er forstöðumaður Stjórnmenntar Opna háskólans í HR. 

 



Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica