Gjaldþrot atvinnurekanda
Skilyrði er jafnframt að launamaður framselji Atvinnuleysistryggingasjóði þann hluta launakröfu sinnar á hendur Ábyrgðasjóði launa er nemur fjárhæð þeirra atvinnuleysisbóta sem hann fær greiddar á þessum tíma.
Með umsókn þarf að fylgja staðfesting stéttarfélags umsækjanda að krafa verði gerð í réttmætan uppsagnarfrest.
Greitt er frá þeim degi sem uppsagnarfrestur tekur gildi og að uppsagnarfresti loknum getur aðili þegið almennar atvinnuleysisbætur.
Launamaður gjaldþrota félags getur fengið tekjutengdar atvinnuleysisbætur.
Mikilvægt er að starfsmenn fyrirtækisins/félagsins komi eins fljótt og auðið er á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þegar þeir hætta störfum.
Nánari upplýsingar á vef Vinnumálastofnunar.
