Sameiginlegar
Fulltrúar IDA í heimsókn
Evrópusambandið hefur gefið út tilskipun um að gefa skuli út starfsréttindaskírteini (professional card) fyrir allar starfsstéttir. Er því ætlað að auðvelda allt utanumhald vegna fólksflutninga innan Evrópusambandsins. FEANI, Evrópusamtök félaga verkfræðinga og tæknifræðinga voru fengin til að ryðja brautina í þessu efni.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 og hefst kl. 12. Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta og hlýða á áhugaverð erindi. Fundurinn fer fram á ensku. Félagsmenn fá ókeypis samlokur og drykki en aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir.
