IDA vill aðstoða Íslendinga
Á fundinum kynnt Lars Bytoft þá aðstoð sem IDA getur veitt. Í gildi er samkomulag milli norrænna félaga verkfræðinga og tæknifræðinga um gestaaðild. Samkomulagið geta þeir félagsmenn nýtt sér sem starfa í norrænu landi utan heimalands sín.
Ástandið á vinnumarkaði verkfræðinga og tæknifræðinga í Danmörku telst vera ágætt. Atvinnuleysi í þessum hópi var 0,9% fyrir ári síðan en er nú 1,9%. Spár miða við að þessi tala verði komin upp í 2,5% næsta haust. Til samanburðar má geta þess að atvinnuleysi meðal ófaglærðra er nú um 5%. Talið er að árið 2020 muni vanta 14 þúsund verkfræðinga og tæknifræðinga. Stór fyrirtæki í Danmörku hafa þurft að grípa til uppsagna en reyna að halda í tæknimenntað starfsfólks vegna fyrirsjáanlegs skorts.
Uppsagnir hjá verktakafyrirtækjum hafa bitnað á verkfræðingum og tæknifræðingum en opinberi geirinn, sérstaklega á landsbyggðinni, hefur ráðið marga úr þeim hópi. Þess má geta að nú eru um 500 laus störf fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga í opinbera geiranum í Danmörku.
Það ætti því að vera nokkuð auðvelt fyrir íslenska verkfræðinga og tæknifræðinga að fá vinnu i Danmörku. Tungumálið getur þó reynst til trafala, yfirleitt er gerð krafa um góða dönskukunnáttu.
En hver eru launin í Danmörku? Nýútskrifaðir verkfræðingar geta gert ráð fyrir 32 þúsund d.kr. í mánaðarlaun. Tæknifræðingar 29 þúsund d.kr. Laun hafa undanfarin ár hækkað um 4-5% ár ári, verðbólga er nú 2%.
Þeim félagsmönnum sem vilja fá frekari upplýsingar um gestaaðildina er bent á að hafa samband við skrifstofu SV/TFÍ/VFÍ. Einnig eru upplýsingar á vef IDA.og vef Ingeniören.
