Atvinnutækifæri í Noregi
Búseta á Íslandi (Pendlun): Viðkomandi er ráðin(n) til starfa í Noregi og fær greitt í norskum krónum en býr á Íslandi og ferðast til Noregs og vinnur þar eftir ákveðnu plani . Til dæmis unnið í tvær vikur og frí í eina viku. Greiddur er fastur styrkur sem á að nægja fyrir leigu á aðstöðu í Noregi og ferðum til og frá Noregi.
Búferlaflutningar: Viðkomandi flytur búferlaflutningum til Noregs og vinnur þar.
Technogarden leitar eftir starfsmönnum á eftirfarandi sviðum:
1. Á svo til öllum sviðum rafmagns.
2. Á loftræsti- og lagnasviði.
3. Á byggingasviði.
4. Á virkjanasviði.
5. Á jarðfræðisviði: verkfræðingar með jarðfræðisérsvið.
6. Á umhverfis- og gatnasviði.
7 . Landslagsarkitektúr.
Leitað er eftir verkfræðingum, tæknifræðingum og iðnfræðingum með minnst þriggja ára starfsreynslu og kunnáttu í einu norðurlandamálanna. Þeir sem eru með meiri sérþekkingu virðast eiga auðveldara með að fá störf en þeir sem eru með mjög breiða þekkingu og reynslu.
Þar sem Technogarden er bæði ráðgjafa- og ráðningarfyrirtæki eru eftirfarandi leiðir í boði:
Að vera ráðin(n) fyrst hjá Technogarden sem leigir viðkomandi aðila til verkefna hjá einhverjum viðskiptavina sinna en það endar yfirleitt með því að fyrirtækið fastræður viðkomandi starfsmann eftir 6 mánuði.
Að vera fastráðin(n) hjá Tecnogarden og fara á milli viðskiptavina Tecnogarden í ýmis verkefni.
Að vera fastráðin(n) strax hjá viðkomandi fyrirtæki.
Grein um Technogarden og kynning, glærur.
Upplýsingar um skattamál, barnabætur og fleira í Noregi. Upplýsingar um laun og starfskjör.
