Samningur við NMÍ hefur skilað árangri
Samstarfssamningur um leit og framboð á möguleikum til atvinnusköpunar fyrir félagsmenn VFÍ, TFÍ og SV var undirritaður í byrjun febrúar s.l. Samningurinn varðar meðal annars vinnuaðstöðu til frumkvöðlavinnu og ýmiss konar aðstoð og stuðning. Upplýsingar um þá möguleika sem eru í boði eru á vef Nýsköpunarmiðstöðvar.
Á fundinum koma fram að samtals hafa 147 ný störf skapast á Frumkvöðlasetrum NMÍ eftir bankahrun. Markmið frumkvöðlasetranna, sem nú eru átta talsins, er að skapa frumkvöðlum þekkingarumhverfi, aðstöðu og umgjörð til að vinna að nýsköpun og veita þeim faglega þjónustu og stuðning við framgang hugmynda sinna.
Þá er búið að samþykkja og veita heimildir fyrir ráðningum á 149 starfsmönnum hjá 67 fyrirtækjum vegna verkefnisins „Starfsorka“. Starfsorka er þríhliða samningur milli Vinnumálastofnunar, fyrirtækis og atvinnuleitanda um ráðningu í störf sem lúta að nýsköpun og þróun og greiðslu atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun greiðir fyrirtækinu beint grunnatvinnuleysisbætur ásamt 8% mótframlagi til lífeyrissjóðs, fyrirtækið ræður atvinnuleitanda við þróun nýrrar viðskiptahugmyndar í allt að sex mánuði og greiðir honum laun samkvæmt gildandi kjarasamningu. Hægt er að framlengja samninginn um í allt að eitt ár ef vel gengur.
