Sameiginlegar
Samningur við Endurmenntun HÍ
Félögin og Endurmenntun vinna saman að framboði námskeiða, framkvæmd þeirra og efnistökum. Einnig munu félagsmönnum standa til boða sérstök afsláttarkjör af völdum námskeiðum. VFÍ og TFÍ hafa frá upphafi verið aðilar að Endurmenntun HÍ. Félögin eru því heiðurssamstarfsaðilar Endurmenntunar. Endur- og símenntunarnefnd VFÍ, TFÍ og SV, ENSÍM-nefndin, vinnur að því að auka framboð af námskeiðum fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga og eru m.a. niðurstöður fræðslukannana hafðar til hliðsjónar.
